»  fjölmiðlar  »  DV
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
DV
Sunnudagur, 30. apríl 2006

Föstudagurinn 28. apríl var svartur dagur í sögu íslenskra fjölmiðla en þá var DV lagt niður í núverandi mynd. Öll sæmilega þroskuð samfélög þurfa á gulri pressu að halda. Aggressívum fjölmiðlum sem pönkast á viðteknum gildum, hlaupa á girðingar og hrista upp í þjóðfélagsumræðunni.

Þörfin fyrir slíkan miðil er hvergi jafn mikil og á Íslandi þar sem við búum enn við alls kyns kredduhugsanir og úrelt viðmið og erum enn að hrista af okkur höft forræðishyggju og brenglað gildismat sem hefur skotið rótum eftir áratugalangt grímulaust hagsmunapot rótgrónustu stjórnmálaflokkanna. Við sitjum enn uppi með úrelt mörk og upplýsingaleynd sem miðar að því einu að halda almenningi í myrkrinu svo valdhafar geti farið sínu fram og stjórnað landinu eftir eigin dyntum og duttlungum.
DV reyndi svo um munaði á þanþol þessara marka og þar sem laun heimsins eru fyrst og fremst vanþakklæti varð það fyrir vikið blað sem margir elskuðu að hata. Þetta lið fagnaði ákaft á föstudaginn og telur sig hafa unnið einhvers konar sigur. Þetta er auðvitað galið þar sem niðurstaðan er sú að við sitjum uppi með fábreyttara fjölmiðlaumhverfi og grámyglulegri tilveru.
Ég fór því í hálfgert þunglyndi á meðan smáborgarar, barnaníðingar og frægðarfólk sem vill hafa óheftan aðgang að fjölmiðlum þegar því hentar skálaði. Vissulega fór DV stundum út yfir öll mörk í umfjöllun sinni um menn og málefni.
Kappið bar þá forsjána yfirliði en DV var samt skemmtilegasta blaðið á markaðnum og ég sakna þess. Blaðinu tókst á skömmum tíma að losa um hálstak „faríseanna“ og „sósíalfasistanna“ á almennri umræðu. Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, gaf þeim sem vilja halda opinberri umræðu í heljargreipum þessi ágætu nöfn og nú verður takið hert aftur og leiðindin taka við á ný.
Það er eitthvað sjúklegt við það að fagna fækkun fjölmiðla og þeir sem hlæja hæst núna eiga örugglega eftir að komast að því að eigin raun að tilefnið er ekkert. Mér finnst Mogginn til dæmis hundleiðinlegur og litlaus en ég myndi líka gráta hann ef hann hyrfi af vettvangi. Því fleiri dagblöð, því betra. Þetta er ekkert flókið.


| 13:07 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff