»  fjölmiðlar  »  Et tu, Brute?
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Et tu, Brute?
Miðvikudagur, 19. apríl 2006

Sögunni verður ekki breytt og því kom það í hlut Júlíusar Sesars að verða nýslátrað páskalamb í mögnuðum lokaþætti Rome á Stöð 2 á sunnudaginn. Þessi endalok komu manni vitaskuld ekki í opna skjöldu en glæsilega útfært morð­atriðið, þar sem svikulir samsærismenn stungu Sesar eins og grís, var svo magnað að maður þjáðist með einvaldinum glæsilega. Gott ef ég felldi ekki tár líka.

Ég saknaði þess samt að margrómuðum andlátsorðum keisarans var slept. Nú efast ég samt stórlega um að öll þau fleygu andlátsorð sem hafa fallið í gegnum söguna hafi í raun og veru verið sögð enda hlýtur það að vera meira en að segja það að vera með hnyttyrði á takteinum akkúrat þegar maður geispar golunni, allra síst þegar það er búið að leggja til manns ótal sinnum með eitruðum rýtingum. Hvort sem það er Shakespeare um að kenna eða einhverju öðru fannst mér samt að Sesar hefði átt að segja „og þú líka bróðir minn Brútus“ þegar sá armi þrjótur lagði til hans á sunnudaginn. Það kom þó ekki að sök þar sem hinn snjalli leikari Ciarán Hinds sagði þetta með augunum.
Það er mikil kúnst að byggja upp spennu í sögu sem allir vita hvernig endar. Þetta hefur tekist með miklum ágætum í Rome og það er ekki síst vitneskja áhorfandans sem hjálpar til í þessum efnum. Þannig var það brjálæðislega merkingarþrungið þegar Markús Antóníus kom að vegnum Sesari, horfðist í augu við morðingjana og bakkaði hægt aftur í skuggann. Og ekki var hatursfullt augnaráð Oktavíanusar litla síður magnað þegar hann horfðist í augu við móður Brútusar þegar hún hlakkaði yfir örlögum Sesars. Það verður nefnilega svaka hasar í næstu þáttaröð þegar Antóníus, þessi léttúðugi fauti, heldur magnaða ræðu á torginu í Róm, snýr stöðunni við og gerir samsærismennina útlæga. Hann og Oktavíanus litli, síðar Ágústus keisari, ganga svo milli bols og höfuðs á hyskinu, svo hressilega að það er enn í minnum haft. Saga Rómar er rétt að byrja þó Júlli sé allur.


| 15:36 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff