»  fjölmiðlar  »  Eyðileggingarmáttur lúðanna
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Eyðileggingarmáttur lúðanna
Þriðjudagur, 04. apríl 2006

Þeir leynast víða lúðarnir, bæði í sjónvarpi sem og annars staðar, og eru misskemmtilegir svo ekki sé meira sagt. Samkvæmt lúðafræðunum vill það annars svo skemmtilega til að sú lúðategund sem er leiðinlegust í raunveruleikanum er iðulega sú skemmtilegasta í sjónvarpinu. Þetta er lúðinn sem er með öllu blindur á eigin vankanta og böðlast áfram með stórfenglegar ranghugmyndir um eigið ágæti.

Skrifstofustjórinn David Brent í The Office er nærtækasta dæmið um þessa lúðategund. Hann er fínn á skjánum en gæti átt á hættu að vera myrtur í raunheimum. Bandarískir framleiðendur sjónvarpsefnis eru oftar en ekki algjörir lúðar enda svo merkilegir með sig að þeir eru illfáanlegir til að sjónvarpa gæðaefni frá öðrum löndum. Þeir vilja frekar staðfæra allt og endurgera. Átakanlegast verður þetta auðvitað þegar þeir ljósrita breska snilld. Sakamálaþættirnir Cracker fengu þessa útreið hjá Kananum. Þar á bæ þótti Robbie Coltraine ekki nógu fínn í hlutverki sálfræðingsins kjaftfora og Robert Pastorelli var dubbaður upp í hlutverkið.
Nú hefur David Brent hlotið sömu örlög en það er eitthvað átakanlegt við að horfa á amerísku útgáfuna af The Office á Skjá einum. Gamanleikarinn Steve Carell (The 40 Year Old Virgin) er svo sem ekkert alveg ófyndinn en hann nær engan veginn að höndla hárfín lúðablæbrigðin sem Ricky Gervais náði fullkomlega í bresku útgáfunni. Allar aðrar persónur The Office hljóta svo sömu örlög í endurgerðinni. Það sem breskir leikarar geta gert blindandi ná þeir bandarísku ekki að leika eftir með stjörnusjónauka. Góðir brandarar úr frumútgáfunni leka máttlausir niður í Bandaríkjunum og þó reynt sé að stæla allt útlit og myndatökutakta er tómahljóðið yfirgnæfandi.
Það er lúðalegt að láta minni spámenn fylla skó sér meiri manna en það sjá þeir auðvitað síðastir allra spekingarnir í Bandaríkjunum.


| 15:35 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff