»  fjölmiðlar  »  Siðblindingi horfir á sjónvarp
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Siðblindingi horfir á sjónvarp
Miðvikudagur, 26. apríl 2006

Raunveruleikasjónvarpsþættir eru eitur í mínum beinum. Lágkúrulegt og ódýrt sjónvarpsefni sem gengur út á það að fá grunnhyggna athyglissjúklinga til þess að gera sig að fíflum fyrir 15 mínútur af vafasamri frægð. Mér leið því eins og ég væri að horfa á grófa klámmynd á kirkjuþingi á föstudaginn þegar ég datt inn í Beauty and the Geek og skemmti mér konunglega.

Þarna eru leiddir saman nördar og fönguleg fljóð sem öll gætu hæglega fengið starf við að þræða sig á súlur á Goldfinger. Strákarnir hafa aldrei komist í tæri við slíkar gyðjur og fljóðin hafa aldrei átt orðastað við jafn gáfaða en um leið útlitsgallaða menn. Þetta býður auðvitað upp á kostulegar senur en þó ég sé mátulega illa innrættur finnst mér samt ljótt að hlæja að þessu enda er grimmt gert út á dragúldnar klisjur um að gáfaðir strákar séu ófríðir klunnar og að fallegar stúlkur séu heimskar og að heilabú þeirra rúmi ekkert annað en snyrtivörur og tískuföt.
Jack Bauer fer mikinn í 24 á sunnudögum og hann er sko enginn nörd en siðblindur er hann blessaður. Þættirnir gefa sjúklega glögga mynd af þeirri hugarfarsbreytingu sem orðið hefur eftir 11. september 2001 og þeim virðist helst vera ætlað að hlaða undir þau viðhorf að það sé í lagi að fótumtroða mannréttindi í nafni þjóðaröryggis. Bauer pyntar fólk miskunnarlaust til sagna þegar almannaheill er í húfi. Og manni finnst þetta bara töff og allt í lagi. Um daginn skaut Jack saklausa konu í fótinn til að brjóta eiginmann hennar niður og maður hugsaði bara með sér „vá! hann er meiri töffari en James Bond!“ Maður er orðinn algerlega samdauna þessu og jafn siðblindur og handritshöfundarnir. Annað lýsandi dæmi um tvöfalt siðgæði 24 dúkkaði upp á sunnudaginn þegar Bauer sagði konu sem aldrei hefur komið við sögu í þáttunum að hann gæti ekki bjargað henni. Taugagas dró hana til dauða fyrir framan nefið á Jack og vinnufélögum hans en þau héldu stillingu sinni. Á hæla konunnar kemur svo feitlaginn karlmaður, einn af félögum Jacks. Hann hlýtur sömu örlög en þá verða allir voða leiðir og tár falla. Hryðjuverk eru þá kannski ekki svo slæm svo lengi sem maður þekkir ekki fórnarlömbin?


| 15:38 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff