»  fjölmiðlar  »  Utanáliggjandi geðvonska
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Utanáliggjandi geðvonska
Þriðjudagur, 18. apríl 2006

Breska löggutvíeykið Dalziel og Pascoe er alveg að bjarga mér frá því að drepast úr leiðindum yfir sjónvarpinu á þriðjudagskvöldum. Raunveruleikaþættir eru eitur í mínum beinum þannig að Amazing Race á Stöð 2 gerir ekkert fyrir mig og einhverra hluta vegna hef ég ekki orðið háður Prison Break á sömu stöð.

Stöð 2 er þó hótinu skárri en Skjár einn en ég get varla ímyndað mér hverskonar mannvonska býr að baki hjá dagskrárstjórum sem raða þremur „kellingaþáttum“ á eitt og sama kvöldið. How Clean is Your House, Heil og sæl og Innlit/útlit í einum rykk er svo lamandi skammtur að hann gæti drepið meðalhraust naut.
Ríkiskassinn bjargar því sem bjargað verður með Dalziel and Pascoe. Þættirnir eru ósköp keimlíkir þeim aragrúa glæpaþátta sem Bretar framleiða af mikilli list. Frumleikinn er ekkert að bera þetta ofurliði en þetta eru engu að síður þættir sem óhætt er að stóla á.
Aðalgaurinn Dalziel minnir um margt á fýlupúkana Frost og Taggart. Þetta er lífreynd lögga sem hefur sopið nokkra fjöruna og þjösnast jafnt á yfirmönnum sínum sem undirmönnum. Hann er semsagt stöðluð steríótýpa sem er engu að síður býsna góð fyrir sinn hatt.
Það sem gerir Dalziel svo jafn heillandi og raun ber vitni, fyrir utan bráðskemmtilegan leik Warrens Clarke og kostulegt útlit hans, er sú staðreynd að hann er besta skinn. Geðvonskan er utanáliggjandi og ristir ekki djúpt. Dalziel er í raun besta skinn, fínn húmoristi og hefur húmor fyrir sjálfum sér. Svona fýlupúkar eru iðulega þegar vel er að gáð skemmtilegustu menn enda pirringurinn bara leikur. Hluti af varnarkerfi viðkvæmrar sálar og endalaus uppspretta skemmtilegheita.
Dalziel er frábær persóna, góður kall og til fyrirmyndar þar sem utanáliggjandi geðvonska skaðar engan og er í raun mannkostur.


| 15:33 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff