»  fjölmiðlar  »  Háspenna lífshætta
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Háspenna lífshætta
Föstudagur, 05. maí 2006

Mikið ofboðslega er hann Jack Bauer í 24 mikill töffari. Það bítur ekkert á manninum sem salalr niður hryðjuverkamann í akkorði sleitulaust í heilan sólarhring án þess vo mikið sem þurfa að kasta af sér vatni eða fá sér hænublund.

James Bond, Jason Bourne og aðrir harðjaxlar kvikmyndanna þurfa heldur betur að uppfæra sig ætli þeir að standast samanburðinn við Bauer sem hefur sett ný viðmið í afþreyingariðnaðinum hvað karlmennsku og töffaraskap varðar.

Hann er hetjan sem rís upp úr rústum Tvíburaturnanna; ískaldur, í stöðugum hefndarhug og tilbúinn til þess að brjóta allar Amnesty International klausurnar í bókinni og pynta saklausa borgara í nafni þjóðaröryggis. Hann er hetja 21. aldarinnar og gamli kaldastríðsjaxlinn hann Bond verður heldur betur að bretta upp ermarnar ætli hann að lifa samkeppnina af.

Bauer er að öðru leyti dæmigerð hasarhetja. Sterkur einstaklingur sem bregst við þegar kerfið bregst. Þegar skriffinnska og kerfiskarlar fara að teygja lopann brýtur Bauer allar reglur, bregður brandi og tekur skúrkana af lífi án dóm sog laga. Við þurfum að trúa því að svona menn séu til og vaki yfir velferð okkar þegar allt annað bregst.
Þessi fimmta þáttaröð 24 er sú besta frá því Bauer kom fyrst fram á sjónarsviðið og reyndi í mögnuðu kapphlaupi við klukkuna að bjarga eiginkonu sinni og dóttur. Spennan magnast nú með hverjum klukkutímanum sem líður og Bauer hefur aldrei þurft að taka jafn hressilega á honum stóra sínum þar sem sjálfur forseti Bandaríkjanna er einn samsærismannanna sem hann á í höggi við.

Þessi forseti hefur verið óttalegt gauð hingað til og ég hef freistast til þess að líta á hann sem góðlátlegt grín að sitjandi forseta Bandaríkjanna. Það var svo ekki fyrr en kauði sýndi sitt rétta eðli að ég áttaði mig á að hann er glettilega líkur Richard Nixon. Ætli það sé tilviljun?


| 16:19 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff