»  fjölmiðlar  »  júní 2006
efnisflokkar

fjölmiðlar
júní 2006

a long time ago...
Að skilja og ekki skilja... fótbolta
Fimmtudagur, 22. júní 2006

Lífið er fótbolti á Spáni eins og annars staðar þessa dagana. Sjálfsagt er lífið alltaf fótbolti á Spáni ef út í það er farið en nú snýst sem sagt allt um HM. Sjónvarpsstöðvarnar hér taka keppnina vitaskuld mjög hátíðlega enda eru Spánverjar þess fullvissir að þeir geti landað heimsmeistaratitlinum í ár.

Sjálfur hef ég ekki hundsvit á þessu sparki en áreitið af þessu er svo yfirþyrmandi að ég hef ekki komist hjá því að fylgjast með. Maður getur hvergi stungið inn nefi á veitingastað eða krá án þess að verið sé að sparka í bolta eða tala um boltaspark á flatskjáum. Í sjónvarpssal sitja jafnan átta manns á miklum málfundum fyrir og eftir leiki og greina leikina frá öllum hliðum eins og um hyldjúp ljóð sé að ræða.

Viðbúnaðurinn er eðlilega meiri hér en heima á Íslandi þar sem Íslendingar eru ljósárum frá því að vera með í keppni þar sem þeir bestu keppa við þá bestu. Samt fæ ég ekki betur séð en Sýn gefi spænsku sjónvarpi ekki mikið eftir hvað umfang og efnistök varðar. Það kemur vitaskuld ekkert á óvart enda eru Íslendingar öfgafólk þegar það kemur að tuðrusparki sem sást best á því þegar Íslenska landsliðið náði 1:1 jafntefli við grúttimbrað B-lið Frakka í Laugadalnum og það var slegið upp þjóðhátíð. Ég hélt alltaf að fótbolti snerist um að vinna en ekki halda jöfnu.

HM leikirnir snúast greinilega um það að vinna og þó ég skilji varla orð hjá óðamála íþróttafréttamönnunum á Spáni (skil þá Íslensku ekkert betur ef út í það er farið) get ég hrifist með og haft ánægju af knattspyrnunni. Tungumál fótboltans er greinilega alþjóðlegt og tilfinningarnar sem blossa upp innan og utan vallar eru sammannlegar þar sem við þekkjum öll gleðina sem fylgir því að sigra, hafa betur og leggja andstæðing og enn betur þekkir maður gremjuna og vonbrigðin sem fylgja því að tapa, verða undir og detta úr leik.

Eitt er algerlega nauðsynlegt til þess að geta haft gaman að þessum ósköpum; maður þarf að halda með einhverjum og til þess að geta tekið virkan þátt í bullinu á pöbbnum mínum ætla ég að svíkja mitt engilsaxneska hjarta og halda með Spáni. Enda ætlum við að taka þetta í ár og hirða dolluna, styttuna eða hvað þetta glingur heitir sem verið er að keppa um.
Viva España!


Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff