»  fjölmiðlar  »  Rokkhjartað missir úr slag
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Rokkhjartað missir úr slag
Laugardagur, 19. ágúst 2006

Ég mun aldrei viðurkenna að ég horfi á Rockstar: Supernova mér til ánægju og yndisauka enda fæ ég ekkert út úr því að hlusta á amatöra djöflast á sígildum slögurum sem helstu hetjur rokksögunnar hafa gert ódauðleg. Er enn að jafna mig eftir að hafa horft upp á einhvern stórundarlegan hobbita með fáránlega augnmálningu slátra Stones-laginu Paint it Black. Mick Jagger lagðist veikur í kjölfarið og þarf engan að undra.

Starfsins vegna legg ég það þó á mig að sitja fram eftir nóttu undir þessum ósköpum þar sem við Íslendingar eigum okkar fulltrúa þarna. Ég vissi nú ekkert hver Magni var áður en Supernova-ævintýrið hans hófst en hann má eiga það að hann ber af keppinautunum. Hann skákar þeim á flestum sviðum og býr yfir breidd, hæfileikum og háttprýði sem hin skortir. Þau trompa hann hins vegar í tilgerð og hroka þannig að hann verður væntanlega kominn heim eftir tvær til þrjár vikur þó hann sé í náðinni hjá rokkhundunum þremur sem ráða örlögum keppenda.

Það segir auðvitað sitt um úrvalið að íslensk sveitaballakempa skuli skyggja á þá fulltrúa milljónaþjóða sem mættir eru til leiks. Það vantar bara illu heilli allt rokk í okkar mann og þess vegna mun hann ekki þurfa að bergja á þeim beiska kaleik að starfa með þessum þremur útbrunnu rokkhundum. Það er að vísu ákveðin þversögn fólgin í þessu þar sem það kom í ljós á miðvikudagskvöld að Supernova eru óttalegar kerlingar. Goðin tróðu upp í þættum í gær og voru ekki harðari en svo að Loverboy voru þyngri á sínum tíma.

Skemmtigildi þáttanna felst annars fyrst og fremst í frummanninum Tommy Lee sem er greinilega alveg jafn vitlaus og slúðurfregnir hafa gefið til kynna í gegnum árin. Villimaðurinn úr Motley Crue er orðinn að gömlum, sorglegum kalli en það gleður mig alltaf að horfa upp á útbrunnið lið reyna að klóra í bakkann.


| 16:11 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff