»  fjölmiðlar  »  Staðlaðar löggur elta hressa morðingja
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Staðlaðar löggur elta hressa morðingja
Mánudagur, 11. september 2006

South Park eru byrjaðir á Sirkus. Löngu tímabært. Þættirnir eru drepfyndnir á köflum en eru fyrst og fremst kærkomnir þar sem groddaleg samfélagsgagnrýni þeirra gengur þvert á pólitískan rétttrúnað. Hressandi efni.

Geðsjúkir raðmorðingjar eru líka hressandi og einhvern veginn tekur maður alltaf fagnandi þáttaröðum sem fjalla um ógeðsleg uppátæki þeirra og það einarða og góða fólk sem gefur sig allt í þá vanþakklátu vinnu að hafa hendur í hári þeirra.

Verst bara hversu keimlíkir og fyrirsjáanlegir flestir þættir um þennan umdeilda þjóðfélagshóp eru. Stöð 2 hefur nú bætt þáttunum The Inside í blóðuga sakamálaflóruna og eftir tvo þætti er ekki gott að segja til um hvort þeir muni halda manni við efnið fram eftir vetri. Það hjálpar þó óneitanlega upp á sakirnar að hinn fantagóði leikari Peter Coyote fer hér fyrir sérsveit sem nennir ekki að lyfta litla putta nema virkilega útsmognir og viðurstyggilegir morðingjar geri vart við sig.

Coyote hefur mikinn skjáþokka og leikur sér að því að halda athygli manns en fljótt á litið virðist hann vera eini óryðgaði öngullinn sem hér er beitt og að öðru leyti er The Inside moðsuða úr sömu formúlu og allur CSI-grauturinn þar sem einn alvitur og nánast ofurmannlegur leiðtogi í gáfum sínum og reynslu heldur saman ósamstæðum en frjóum hópi rannsakenda. Persóna Coyotes og Gil Grissom í CSI eru til að mynda náskyldar. Þetta þarf þó alls ekki að vera dauðadómur yfir The Insider þar sem maður endist enn yfir CSI og þó löggurnar séu alltaf eins eiga morðingjarnir það til að bjarga miklu enda hafa þeir umtalsvert meira svigrúm og geta veitt sköpunargleðinni útrás í athöfnum sínum.


| 9:10 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff