»  fjölmiðlar  »  Er lífið fótbolti?
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Er lífið fótbolti?
Mánudagur, 23. október 2006

Ég á bágt með að trúa tröllasögunum um að RÚV hafi tryggt sér réttinn á útsendingum frá Evrópumótinu í knattspyrnu árið 2008 með yfirboði sem nemur allt að 100 milljónum og eru sóttar beint í vasa skattgreiðenda og skylduáskrifenda.

Eina raunverulega réttlætingin á sjónvarpsrekstri ríkisins er sá vörður sem batteríið á að standa um íslenska menningu. Samkvæmt frumvarpinu á RÚV að veita 150 milljónum á ári til framleiðslu innlends dagskrárefnis og sú upphæð ætti með réttu að hlaupa á milljörðum ef eitthvert samræmi væri í verðmætamati RÚV sem er tilbúið að greiða 100 milljónir fyrir hálfan mánuð af boltasparki.

Þar fyrir utan eru boltakaupin enn eitt dæmið um hversu kolbrjáluð samkeppnisstaðan er á íslenskum sjónvarpsmarkaði þar sem RÚV hefur geggjað forskot á frjálsu stöðvarnar, djöflast samt á þröngum auglýsingamarkaði og skekkir alla heilbrigða samkeppni með nánast ótakmörkuðum aðgangi að almannafé. Þetta er ekki ósvipað því að taka þátt í sundkeppni og andstæðingurinn er lagður af stað og kominn út í miðja laug áður en maður sjálfur er kominn í sundskýluna, svo maður noti líkingamál sem ætti að skiljast bæði í Efstaleiti og menntamálaráðuneytinu.

Maður gæti svo sem alveg farið í gamlar skotgrafir og býsnast yfir því að það þyki sjálfsagt að puðra 100 milljónum af almannafé til að þjóna háværum og frekum minnihlutahópi. En það er bara svo margt, margt annað sem er móðgun við heilbrigða skynsemi í þessu máli og menn myndu sennilega ekki leyfa sér nema vera í fullvissu um að íslenskur almenningur láti bjóða sér hvað sem er. Undarlegast er vitaskuld að sjálfur Páll Magnússon, sem áður hélt ófáar og innblásnar ræður um brenglaða samkeppnisstöðu þegar hann var hinum megin við borðið, skuli vera svo djarfur að verja nú þessi bolabrögð með kjafti og klóm.


| 11:07 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff