»  fjölmiðlar  »  Karmareikningar í plús og mínus
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Karmareikningar í plús og mínus
Mánudagur, 16. október 2006

Ég hef enga yfirsýn yfir það hversu gott úrval af gamanþáttum sjónvarpsstöðvarnar bjóða upp á enda hneigist ég frekar til glæpa þegar það kemur að sjónvarpsglápi. Sjónvarpsgrínið höfðar því ekki til mín nema í örfáum tilfellum sem skýrsit að einhverju leyti að því að skopskyn mitt er svo brenglað og á lágu plani að ég hafði gaman að bóksöluþáttunum Stacked með Pamelu Anderson á Sirkus.

Þetta gengur meira að segja svo langt að ég hef saknað þáttanna eftir að þeir runnu sitt skeið en hvítaruslið Earl hefur nú fyllt skarð Pamelu svo hressilega að söknuðurinn er að engu orðinn.
My Name is Earl hafa það líka óumdeilanlega framyfir Pamelugrínið að þeir eru virkilega fyndnir enda kannski ekki við öðru að búast þegar annar eins eðalleikari og Jason Lee er á ferðinni. Earl er dásamlegur í meðförum hans og endalaust brölt hans við að núllstilla karmareikninginn býður upp á ótal möguleika.

Auðunn Blöndal kemur í kjölfar Earls á þriðjudögum á Sirkus með nýja þáttinn sinn Tekinn. Þetta er einhvers konar íslensk staðfærsla á Punke´d með Aston Kutcher og Auðunn fíflast í þekktum Íslendingum. Það er ekki sanngjarnt að dæma nýja þætti eftir að aðeins einn þáttur hefur farið í loftið en mér sýnist Auðun fara ágætlega af stað. Góðir hrekkir eru fínt sjónvarpsefni en það er hætt við því að það þurfi að teygja aðeins á lopanum til þess að einn brandari nái að fylla heilan þátt.
Auddi er hins vegar nógu léttur og hress til þess að fylla í eyðurnar og miðað við þennan fyrsta þátt þá ætti þessi sjónvarpstilraun hans að geta gengið upp.


| 19:15 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff