»  fjölmiðlar  »  Öruggt upplýsingastreymi
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Öruggt upplýsingastreymi
Mánudagur, 09. október 2006

Ríkisútvarpið er stofnun og því undrast margir að það skuli brjótast um eins og ölvað bjarndýr á barnaskólalóð á fjölmiðlamarkaði. Þetta brölt kemur fyrst og fremst spánskt fyrir sjónir þar sem reynslan hefur sýnt að það fer fyrirtækjum iðulega betur en stofnananbáknum að reka fjölmiðla. Sjálfum finnst mér þeir sem hamast mest gegn RÚV fara offari og horfa til dæmis fram hjá því mikla öryggi sem fólgið er í því að hafa heila ríkisstofnun á öldum ljósvakans.

Sjónvarpið minnti með áþreifanlegum hætti á öryggishlutverk sitt með beinni sjónvarpsútsendingu frá stefnuræðu forsætisráðherra og umræðum um hana í vikunni.

Engin sjónvarpsstöð sem er rekin samkvæmt lögmálum markaðarins myndi leggja dagskrá sína undir jafn samfélagslega mikilvægan dagskrárlið og ég get því þakkað RÚV það að nú veit ég upp á hár hvar ég stend gagnvart nýjum forsætisráðherra, nýjum formanni Framsóknarflokksins og stjórnarandstöðunni.

Það er mikilvægt fyrir þjóðaröryggi að þegnarnir séu upplýstir og þar stendur RÚV vaktina með sóma. Það kom mér þó óþægilega á óvart þegar ég mætti til vinnu daginn eftir útsendinguna og ætlaði að ræða landsins gagn og nauðsynjar, matarverð og varnarmál, við vinnufélaga mína þá komu allir af fjöllum og enginn hafði horft á þetta.
Ég hef nú ekki nennt að fletta því upp hvað aðrar sjónvarpsstöðvar buðu upp á á meðan þingheimur fór yfir mál sem varða okkur öll en leyfi mér að efast um að frjálsu stöðvarnar hafi með góðu móti trompað RÚV þetta kvöldið.


| 9:06 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff