»  fjölmiðlar  »  Óþolandi bið á enda
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Óþolandi bið á enda
Fimmtudagur, 05. október 2006

Það kom loksins að því í gærkvöld að Ríkissjónvarpið byrjaði að sýna sjöttu Sopranos-þáttaröðina, löngu eftir að hún rann sitt skeið í Bandaríkjunum og væntanlega víðast hvar í hinum siðmenntaða heimi. Þessir þættir um andlegar hremmingar mafíuforingjans Tónýs eru með því allra besta sem komið hefur frá framleiðendum amerísks sjónvarpsefnis undanfarin ár og hafa borið af eins og gull af eir í þeirri erlendu dagskrá sem ríkiskassinn dælir ofan í nauðungaráskrifendur.

Hver þáttur jafnast á við eðalkvikmynd að gæðum og breytir þá engu hvort horft er til handrits, kvikmyndatöku, tónlistar eða leiks. Fagmennskan drýpur af hverjum ramma og þessi herlegheit verða til þess að maður borgar afnotagjaldið með bros á vör á meðan þau eru á dagskrá.

Það er hins vegar illt að þurfa að sætta sig við slíka bið og ég hef lengi rambað á barmi þess að gerast lögbrjótur og sækja þættina á netið þar sem óþolinmæðin hefur verið að bera mig ofurliði.
Stöð 2 bauð til dæmis áhangendum Jacks Bauer í 24 ekki upp á þessi mafíuvinnubrögð og var ekki nema fimm þáttum á eftir Kananum þetta árið á meðan Sjónvarpið annaðhvort hundskaðist ekki til þess að kaupa Sopranos strax eða sá ástæðu til að liggja á þessu efni eins og ormur þar til hægt væri að tefla gullmolunum fram í vetrardagskránni.

Það er auðvitað ekkert mál að stunda svona bellibrögð í skjóli skakkrar samkeppnisstöðu en þetta er vitaskuld ofbeldi í ákveðinni mynd. Ég tek Tóný og félögum fagnandi en kann RÚV ákaflega litlar þakkir. Get eiginlega ekki annað en kvittað fyrir móttöku þessa síðbúna pakka að hætti Tónýs með öðrum orðum en „thanks for nothing“.


| 16:03 |
komment

Borgar ekki Fréttablaðið afnotagjaldið fyrir þig?

Nr. 1 | DuranDuran | 6.10.2006 | 11:08:09 | [+] |

Er það? Þú ert með einhvern annan og betri díl.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 9.10.2006 | 14:16:39 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff