»  fjölmiðlar  »  Góðir þættir á slæmum tíma
nýlegir pistlar

nýleg komment

a long time ago...
Góðir þættir á slæmum tíma
Mánudagur, 13. nóvember 2006

Sýningar á annari þáttaröð bandarísku gamanþáttanna Arrested Development eru byrjaðar á Stöð 2 og ekkert nema gott um það að segja. Manni finnst samt einhvern veginn að þessum frábæru þáttum mætti finna fínni stað í dagskrá stöðvarinnar en klukkan hálf ellefu á fimmtudagskvöldum.

Arrested Development eru með frumlegustu og fyndnustu gamanþáttum sem komið hafa frá Bandaríkjunum, höfuðvígi sjónvarpsmenningarinnar, um árabil og ættu því tvímælalaust að flokkast sem svokallað „primetime“ efni. Örlög þáttanna ytra voru þrátt fyrir þetta, illu heilli dapurleg þar sem þeir voru slegnir af nánast í miðjum þriðja árgangi.

Hárfínn og klikkaður húmorinn var víst ekki alveg að skila sér til Kanans þannig að þótt Evrópubúar hafi tekið þáttunum opnum örmum runnu þættirnir sitt skeið of fljótt. Harmakvein og mótmæli dugðu ekki til að bjarga Arrested Development en við njótum þess á klakanum að þættirnir duttu seint í sjónvarp hér þannig að það er enn af nógu að taka.

Arrested Development eru án efa besta fjölskyldugrín frá því Löður var og hét og þættirnir minna um margt á þá eðalsápu enda eru persónurnar í báðum tilfellum svo kengsúrar að það er ekki annað hægt en kolfalla fyrir þeim.
Þá eru handrit þáttanna mikil listasmíð og samtöl persóna og tvíræðir orðaleikir eru meira að segja góðir á breskan mælikvarða. Og til þess að gera gott enn betra er hver leikarinn öðrum betri þannig að það leggst allt á eitt til þess að gera Arrested Development að fyrsta flokks sjónvarpsefni. Væru þessir þættir ekki búnir að vera fáanlegir á DVD um nokkurt skeið væri óverjandi að sýna þá ekki á besta tíma á laugardagskvöldum.


| 10:54 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff