Laugardagur, 25. nóvember 2006
Ég er búinn að reyna að greina svo mörg torræð atómljóð í gegnum tíðina að ég er löngu hættur að taka mark á auglýsingum þar sem fjölmiðlar tíunda ágæti sitt með vísunum í lestrar- og áhorfskannanir. Niðurstöður rannsókna af þessu tagi eru nefnilega gæddar þeirri ónáttúru að hver sem er virðist geta lesið það sem honum sýnist út úr þeim.
Áhorfskannanir eru þó síður en svo gagnslausar, þótt þær séu opnar fyrir rangtúlkunum, og ef þær eru skoðaðar á yfirvegaðan og vísindalegan hátt (les: ekki í markaðsskyni) geta þær gefið fróðlega mynd af andlegu ástandi þjóðarinnar. Framboðið af rusli í sjónvarpi er mikið og það segir sig sjálft að þjóð sem horfir á mikið af innihaldslausu drasli er sjálf í rusli.
Það fór því um mig nettur kuldahrollur þegar ég sá heilsíðu auglýsingu frá Skjá einum þar sem fram kom að Innlit/útlit og America´s Next Top Model væru á meðal tíu vinsælustu þáttanna í íslensku sjónvarpi.
Sé raunverulegt fólk á bak við áhorfstölurnar sem skila þessum þáttum inn á listann er ærin ástæða til þess að hafa þungar áhyggjur af andlegu ástandi einhvers hluta þjóðarinnar. Nafn Innlits/útlits segir vitaskuld allt sem þarf að segja um það sem gerjast í kolli þeirra sem á horfa: Sjúkleg gægjuþörf og forvitni um einkahagi náungans og ofur áhersla á útlit, leiktjöld, sýndarmennsku og fals. Lífið hverfist allt um umbúðir sem gera fátt annað en að kæfa hinn innri mann.
Útlitshugmyndafræðin er svo sprengd út í yfirþyrmandi öfgar í fyrirsætuþættinum sem er löðrandi í mann- og kvenfyrirlitningu. Fólk sem skemmtir sér við að horfa á hrokabrussuna Tyru Banks nota fyrirsætudrauma til að tæta í sig stúlkur á barmi taugaáfalls ætti að staldra við og sálgreina sig á fimm mínútum.
Þátturinn er svo ofan í kaupið markaðssettur sem „vinsælasti konuþátturinn“ sem er auðvitað fullkomin þversögn en um leið efni í að minnsta kosti tíu pistla til viðbótar.
| 16:35 |