fjölmiðlar

Miðaldra á kafi í unglingasápu
Þar sem líf mitt snýst að stórum hluta um fréttir er mér eðlislægt að horfa alltaf á fréttatíma Ríkissjónvarpsins og Stöðvar 2. Og auðvitað líka viðhengi þeirra, Kastljós og Ísland í dag. Skyldusjónvarpið hefur samt leikið mig ansi grátt síðasta mánuðinn með því að setja Kastljós í sumarfrí.

Ég er nefnilega skelfilega vanafastur og skilyrtur einstaklingur og því ekki fær um að slökkva á sjónvarpinu strax og fréttum lýkur. Vegna þess að ef allt er eins og það á að vera þá á ég hálftíma gláp eftir. Vegna þessa hef ég, nánast lamaður, horft á alls konar dellu sem fyllti skarð magasínþáttarins.

Versta hliðarverkun þessa rasks á reglulegri tilveru minni er að á sumarfrístímanum hef ég ánetjast undarlegum þætti um sorgir og sigra ungra stúlkna í hinum harða heimi fimleikanna. Fátt er í raun jafn ólíklegt til þess að vekja áhuga minn en samt sit ég límdur og eiginlega heillaður yfir þessu.

Ég er því eðlilega búinn að velta því talsvert fyrir mér í hverju aðdráttarafl þessara þátta liggur fyrir fertugan karlmann. Ég er ekki svo pervers að ég hafi áhuga á að horfa á stelpur, sem gætu verið dætur mínar, fetta sig og bretta í sundbolum og alla jafna er ég nú meira fyrir morð og blóðsúthellingar en ótímabæra þungun og átraskanir.

Ég tek samt virkan þátt í þessu öllu með stúlkunum. Þjáist og gleðst um leið og ég rifja upp hversu ömurlegur tími unglingsárin voru. Held samt að ég sé svona opinn fyrir þáttunum þar sem ég er meira fyrir að drepast en duga og alltaf tilbúinn að leggja árar í bát. Þetta hlýtur bara að vera dulin aðdáun mín á áræðni, dug, hörku og grimmd þessara yngismeyja sem veita lítinn afslátt í lífsbaráttunni.

Í sjónvarpinu Make It or Break It ***

Vanir menn, vönduð spenna
Bandarískir glæpaþættir af sauðahúsum Law&Order og CSI þykja ekkert sérstaklega merkilegt sjónvarpsefni. Í það minnsta ekki hjá þeim sem standa fastir á því að sjónvarp eigi fyrst og fremst að fræða fólk og upplýsa.Og væntanlega drepa það úr leiðindum á meðan.

Ég er af þeim kærulausa skóla fólks sem lítur fyrst og fremst á sjónvarp sem tæki til afþreyingar og horfi því helst aðeins á sakamálaþætti þar sem fátt styttir manni stundir betur en morð, limlestingar, skotbardagar og lífsháksi eitilharðs lögreglufólks sem leggur sig allt fram um að hneppa siðvillinga og annað varhugavert morðingjahyski í varðhald.

Skjár einn er því mitt helsta varnarþing þegar í sófann er komið enda sinnir stöðin því hlutverki sínu að skemmta mér án þess að reyna of mikið á þverrandi vitsmunina með notalegum glæpaþáttum úr hinum lífseigu og víðfeðmu þáttaröðum CSI og Law&Order.

Nýjasta viðbótin er Law&Order: Los Angeles. Formúlan er í grunninn sú sama og öllu hinu gumsinu en sá ágæti leikari Alfred Molina lyftir þáttunum skör ofar. Traustur og flottur kall sem leikur saksóknara sem hverfur aftur til uppruna síns og fer að eltast við glæpamenn á götum úti ásamt öðrum rannsóknarlögreglumanni.

Það er ætíð fagnaðarefni þegar alvöru leikarar, sem hafa aflað sér vinsælda og virðingar á hvíta tjaldinu, stíga ofan í sjónvarpslágkúruna og láta þar ljós sitt skína. Staðan er til dæmis ekki verri í Los Angeles en systurþættinum Law & Order: Criminal Intent um þessar mundir þar sem sjálfur Jeff Goldblum er mættur til leiks og með aðeins fasi sínu og tjáningu gefur lögreglupersónu sinni meiri dýpt en maður á að venjast á þessum slóðum.

Þegar menn eins og Goldblum og Molina eru á staðnum er sko ekki í kot vísað á Skjá einum og maður skammast sín ekki einu sinni fyrir að viðurkenna að maður vill helst ekki missa af þætti.

Í sjónvarpinu Law&Order: Los Angeles og Criminal Intent ***

Vont versnar og versnar
Ég reyndi að vera jákvæður í garð Tríós þegar ég skrifaði um þættina fyrir nokkrum vikum. Mér þótti ekki vandað að slátra þessu eftir aðeins tvo þætti þótt ekki væri hægt að leyna því að byrjunin lofaði ekki góðu.

Síðan þá hefur þetta bara versnað og höfundurinn, Gestur Valur Svansson, býður upp á ótrúlega moðsuðu hallærislegra klisja, endurunninna brandara og stirðra samtala sem sullað er í allar áttir innan bæklaðs ramma lítilfjörlegrar sögu.

Hvergi örlar á frumleika í þessu drasli. Steinn Ármann hægði sér á bak við bíl í fimmta þætti. Það var ekki fyndið þótt það hafi verið sniðugt þegar Frank Hvam gerði slíkt hið sama í Klovn. Það var grátbroslegt og átakanlegt þegar stómapoki rifnaði í sundlaug í Klovn en það var nákvæmlega ekkert spaugilegt við það þegar gellur í bikiníum voru baðaðar upp úr skólpi í heitum potti í Tríó. Það var tragikómískt þegar stúlka í Djúpu lauginni svaraði því aðspurð hver væri uppáhaldspersóna hennar í mannkynssögunni að hún hefði aldrei lesið þá bók. Þessi eldgamli brandari úr hversdagslífinu var jafn kengsúr og appelsínan sem vildi láta skera sig í báta þegar hún datt í sjóinn í Tríó.

Gestur Valur er samt borubrattur og í réttlætingarbloggfærslu, sem er fyndnari en Tríó í heild, ræðir hann vinskap sinn við Casper í Klovn og vísar í áhorfstölur sem vitnisburð um að fjöldinn kunni að meta Tríó. Ekki veit ég nú hversu örugg ánægjuvog sú tölfræði er í raun og veru. Eina ástæðan fyrir því að ég horfi á Tríó og hef ekki misst af þætti er sú að ég bíð spenntur eftir því að sjá hvort næsti þáttur geti mögulega orðið verri en sá síðasti. Sú hefur orðið raunin og mann grunar að meirihluti þeirra sem horfa á Tríó séu að hlæja að Gesti Val – ekki með honum.

Í sjónvarpinu Tríó 0

Gæti verið verra
Gamanþáttaröðin Tríó hóf göngu sína á RÚV fyrir þremur vikum. Fyrsti þátturinn vakti óneitanlega mikla athygli þótt hún gæti nú tæpast talist jákvæð. Kaldhæðinn kuldahrollur fór um netheima þar sem áhorfendur kepptust við að tala þáttinn niður með heilmiklum tilþrifum sem sum hver voru skemmtilegri en það sem fyrir augu bar á skjánum þetta fimmtudagskvöld.

Rétt er að hafa í huga að þegar þetta er skrifað hafa aðeins tveir þættir farið í loftið þannig að ekki er útilokað að Tríó eigi eftir að rétta eitthvað úr kútnum. Annar þáttur var ívið skárri en sá fyrsti og með góðum vilja mátti sitja yfir honum og glotta stundum út í annað. En miðað við hæga þróunina á milli þátta eru líkurnar á því að grínið hrökkvi í gír minni en meiri.

Frumleikanum er ekki fyrir að fara enn sem komið er. Persónurnar eru stöðluð fífl af ýmsu sauðahúsi og sprellið gengur aðallega út á líkamlega fötlun, hreyfihömlun og tourette-heilkennið. Nú má vissulega gera grín að öllu en fötlunargrínið í Tríói er klaufalegt og því óhjákvæmilega á frekar lágu plani. Sá mikli danski brandarakall, Casper Christensen, er sagður hafa verið höfundinum og leikstjóranum Gesti Val Svanssyni innan handar og líklega má rekja heitan pott fullan af klóakvatni til Danmerkur. En eins og kúk og piss húmor Dananna er góður þá er hann morkinn í Tríói.

Samtölin í þáttunum er frekar stirð og kauðaleg en það sem af er tekst fínum leikurum að gera þetta bærilegt og í raun er mesta furða hvað eðlisfyndnum mönnum eins og Steini Ármanni og Bergi Ingólfssyni tekst að gera úr efniviðnum sem þeir eru með í höndunum.

Tríó fer ekki vel af stað en gæti samt verið verra og enn er von. Pínu.

Í sjónvarpinu Tríó **

Það sem Bretar einir geta
Engir standa Bretum framar þegar kemur að framleiðslu vandaðs sjónvarpsefnis og breytir þá engu hvort um er að ræða grín, spennu eða hádrama. RÚV sýnir þessar vikurnar Sakborninga á miðvikudagskvöldum. Alveg hreint frábærir þættir og þvottekta dæmi um að í sjónvarpi geta Bretar gert eitthvað sem engir aðrir geta.

Hver þáttur segir sjálfstæða sögu af einstaklingi sem bíður réttarhalda og síðan er rakið hvað varð til þess að viðkomandi komst í þessa óþægilegu stöðu. Sögurnar hingað til hafa verið firnasterkar. Þær hitta áhorfandann lóðbeint í hausinn og hrista aðeins upp í sálarlífinu. Það er ekki síst fyrir frábæran leik sem slagkraftur þáttanna er jafn mikill og raun ber vitni en Bretar virðast alltaf eiga frábæra leikara í hvaða hlutverk sem er. Sjálfsagt vegur þar sterk og rótgróin leikhúshefðin þungt og áreynsluleysi leikaranna í Sakborningum, þegar þeir takast á við erfiðar tilfinningar, er magnað.

Þættirnir eru runnir undan rifjum handritshöfundarins Jimmys McGovern sem er sérstaklega flinkur við að segja átakanlegar og erfiðar sögur sem skilja eitthvað eftir sig.

Hann skrifaði handritið að hinni frábæru bíómynd Priest (1994) og á heiðurinn af glæpaþáttunum Cracker þar sem hinn þéttholda Robbie Coltrane fór á kostum í hlutverki drykkfellda og spilasjúka sálfræðingsins Fitz sem aðstoðaði lögregluna við lausn flókinna sakamála með alls konar sálfræðitrixum og niðursuðudósaheimspeki. Þá komu þættirnir The Lakes og The Street, sem hafa verið sýndir í íslensku sjónvarpi, úr smiðju McGoverns og eru flestum sem á horfðu eftirminnilegir.

Maður grenjar ekki mikið yfir afnotagjöldunum á meðan RÚV býður upp á jafn mikinn lúxus og Sakborningana.

Í sjónvarpinu Accused ****

Skrúfan er laus
Fátt er jafn dapurlegt og ófyndið fólk sem reynir að vera sniðugt í fjölmiðlum en að sama skapi er fátt jafn skemmtilegt og þessi sama manngerð þegar hún verður alveg óvart fyndin. Grínið verður nefnilega svo eðlilegt og áreynslulaust þegar grínarinn hefur ekki hugmynd um hversu hlægilegur hann er.

Tvíhöfðarnir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr voru drepfyndnir í útvarpi á sínum tíma. Að vísu meðvitað en mjög áreynslulaust. Þeir sem enn syrgja Tvíhöfðann sinn ættu að þerra burt tárin og hlusta á innhringiþáttinn Línan er laus. Þá stendur nefnilega vaktina, oftast á víxl, fyndnasta útvarpspar sem sögur fara af frá því Tvíhöfði var og hét. Þau Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson taka sig að vísu afar hátíðlega þegar þau keppa í bulli og kjaftavaðli við misgáfulega fastahlustendur sína. Yfirleitt fer aldrei á milli mála að þessi kostulegi hópur veit lítið sem ekkert í sinn haus en þar sem þau telja sig vita allt manna og kvenna best verður þetta óvart alveg óborganlegt.

Þegar Jón Gnarr og Sigurjón gerðu sitt innhringigrín þar sem núverandi borgarstjóri brá sér í líki alls kyns fábjána og kverúlanta sem hringdu í útvarpið til þess að kvarta yfir öllu milli himins og jarðar eða tilkynna að þeir hefðu verið að borða málningu fór ekkert á milli mála að þar var farið með saminn texta. Þetta var vissulega sprenghlægilegt en þeir félagar gætu samt aldrei skrifað jafn fyndin samtöl og Sögufólkið ryður út úr sér fyrirhafnar- og umhugsunarlaust. Þetta er alveg kostulegt og eina ástæðan fyrir því að þessi sprelllifandi og  útvarpsþáttur missir eina stjörnu og fær ekki fullt hús er að eftir langvarandi hlustun á maður til að steypast ofan í kolsvart hyldýpi þunglyndis yfir því hversu margir Íslendingar með hættulegar skoðanir ganga lausir og hafa aðgang að síma.

Ofurmannlegir athyglisþjófar
Úff. Þá verða þessir Við tækið pistlar ekki fleiri. Sem betur fer þar sem fátt er fánýtara, ef ekki hreinlega hallærislegra en skrif fólks um sjónvarpsgláp sitt. Hugsanlega fín æfing fyrir byrjendur en eftir sex ár. Fokk.

Eftir draugfúla sjónvarpsmánuði í lok árs hrúgast nú inn áhugaverðir þættir á alla helstu sjónvarpspósta. Þættir sem hafa þegar fest sig í sessi eru áberandi og það er lítil hætta á því að maður fari að snúa baki við 24, Lost!, Desperate Housewives og Rome.

Það er hins vegar ekki eftirsóknarvert hlutskipti að eyða lunganum af frítíma sínum fyrir framan sjónvarpið þannig að maður getur ekki leyft sér að ánetjast öllum nýliðunum sem munu reyna að stela dýrmætum klukkustundum úr lífi manns næstu vikurnar.

Raðmorðinginn Dexter sem byrjar á Skjá einum í næstu viku hefur ákveðna forgjöf á aðra þar sem hann hefur þegar verið kynntur til leiks í ágætri glæpasögu sem kom út fyrir jólin 2005. Þessi blóðslettusérfræðingur lögreglunnar á Miami sem dundar sér við að drepa illmenni utan vinnutíma var heillandi á pappírnum og maður mun láta hann njóta þess á skjánum. Í það minnsta til að byrja með.

Annars hef ég ákveðið að láta allt nýmeti lönd og leið fyrir utan Heroes, sem eru komnir á þriðju viku á Skjá einum. Þættirnir lofa góðu og það þurfti ekki nema þá tvo fyrstu til þess að festa mann við þessa mislitu hjörð ungs fólks sem kemst óvænt að því að það býr yfir ofurmannlegum hæfileikum.

Ofurhetjan hefur verið að sækja í sig veðrið í kvikmyndum á liðnum árum og hefur gert leiftursókn af blaðsíðum myndasögubóka yfir á hvíta tjaldið. Það hlaut að koma að því að þær sæktu fram í sjónvarpi og takist liðinu í Heroes að hasla sér völl í imbakassanum munu sjálfsagt fleiri fylgja í kjölfarið. Ekkert að því. Ofurhetjur eru hressar og sem betur fer oftast skemmtilegar.

Tvær leiðir til að deyja
Sjötti sólarhringurinn í lífi terroristaskelfisins Jack Bauer hófst á Stöð 2 á sunnudaginn. Heldur var af okkar manni dregið í þessum fyrsta þætti 24  þar sem hann sneri aftur eftir erfitt frí í Kína.

Bauer er enginn venjulegur maður og stóð af sér píslir og vandarhögg kínverskra kvalara sinna til þess eins að láta forseta sinn fórna sér í refskák við grimma hryðjuverkamenn.

Jack var nú ekki að gera veður út af því enda alltaf tilbúinn til að deyja fyrir þjóð sína. Hafði meira að segja tórað í Kína vegna þess eins að hann vildi ekki deyja til einskis. Jack er með þetta allt á hreinu. Það eru tvær leiðir til að deyja. Til einskis eða fyrir eitthvað sem skiptir máli og Jack tekur auðvitað seinni kostinn.

Ræða Jacks um mikilvægi þess að deyja fyrir eitthvað var á mörkum þess að vera hallærisleg þó Jack sé töff. Amerísk þjóðremban verður stundum bara svo yfirgengileg í þáttunum og Jack var þarna fyrst og fremst að brýna það fyrir áhorfendum að þeir ættu allir að líta á það sem heiður að fá að fórna sér fyrir þjóð sína í stríðinu við hryðjuverkamenn.

Skilaboð Jacks eru skýr enda kom hann til sögunnar eftir 9/11 og er maður nýrra tíma. Þættirnir eru grímulaus áróður fyrir því að útsendarar yfirvalda eigi að hafa alveg frjálsar hendur þegar það kemur að því að uppræta þjóðarmein og afhjúpa svikara.

Þess er þó vandlega gætt að senda Bush-stjórninni tóninn reglulega og góða fólkið í Hvíta húsinu veit að herlög og  fangabúðir leysa engan vanda. Lausn 24 á hryðjuverkavandanum er einfaldlega sú að hafa skynsama demókrata í Hvíta húsinu en leyfa þeim að beita fyrir sig mannlegum vígvélum sem er jafn umhugað um mannréttindi og ýktri skrípamynd af Donald Rumsfeld.

Þrátt fyrir þetta er Bauer okkar maður. Langflottastur. Spennan og skemmtigildið kaffæra heilbrigða skynsemi og ég mun ekki hika við að helga honum næstu 23 sunnudagskvöld. Verst samt ef ég og börnin mín verðum Bauer svo fylgispök að við förum að taka meðul hans góð og gild.

Læknir í teinóttu, lögfræðingur í hvítum sloppi
Starfsstéttir sem maður myndi ætla að væru almennt frekar óspennandi hafa veitt amerískum sjónvarpsskáldum endalausan innblástur sem hefur skilað sér í ótrúlegum fjölda vinsælla sjónvarpsþátta.

Þarna fara fremstir í flokki læknar og lögfræðingar sem lifa alveg hreint ótrúlega spennandi einkalífi að maður tali ekki um hasarinn sem virðist einkenna hvern einasta vinnudag hjá þeim.

Ég hef aldrei alveg séð hvað heillar við lækna og lögfræðinga. Allar spítalaheimsóknir mínar hafa verið með eindæmum niðurdrepandi og leiðinlegar og samskipti mín við lögfræðinga, sem hafa sem betur fer verið takmörkuð, hafa verið svo steríl að ég get ekki ímyndað mér annað en að meðallögfræðingur gæti drepið naut úr leiðindum á klukkustund og myndi svo rukka fyrir það eins og 12.000 krónur með bros á vör.

Þættir eins og Gray´s Anatomy, E.R., Chicago Hope, L.A. Law, Boston Leagal, The Practice og hvað þetta heitir allt saman eru því ekki í neinum tengslum við hversdagslegar hugmyndir mínar um lækna og lögfræðinga.

Þetta dót allt getur samt verið ágætis skemmtun og spítalar og réttarsalir virka vel sem umgjörð sjónvarpsþátta, eins og hvað annað. Persónusköpun, söguþráður og leikaraval ræður fyrst og fremst úrslitum.

Þessa dagana túlka tveir frábærir leikarar lækni og lögfræðing í sjónvarpinu. Hugh Laurie er í stuði sem dr. House í samnefndum þætti og erkitöffarinn James Woods sýnir tennurnar í lagadramanu Shark. Báðir leika þeir yfirburðamenn á sínu sviði. Hrokafulla og skemmtilega kjaftfora snillinga sem leiða andaktuga hjörð ungra lærlinga til glæstra sigra á sjúkdómum og afbrotamönnum. Þrátt fyrir góða takta leikaranna sem bera þetta uppi er hætt við því að þetta þynnist fljótt út. Hver þáttur er öðrum líkur og um leið og leikararnir hætta að heilla í stöðluðum hlutverkunum verða þessir þættir jafn áhugaverðir og biðstofuseta á heilsugæslustöð eða þras um ógreiddar stöðumælasektir.

Sálgreining á sjónvarpsþjóð
Ég er búinn að reyna að greina svo mörg torræð atómljóð í gegnum tíðina að ég er löngu hættur að taka mark á auglýsingum þar sem fjölmiðlar tíunda ágæti sitt með vísunum í lestrar- og áhorfskannanir. Niðurstöður rannsókna af þessu tagi eru nefnilega gæddar þeirri ónáttúru að hver sem er virðist geta lesið það sem honum sýnist út úr þeim.

Áhorfskannanir eru þó síður en svo gagnslausar, þótt þær séu opnar fyrir rangtúlkunum, og ef þær eru skoðaðar á yfirvegaðan og vísindalegan hátt (les: ekki í markaðsskyni) geta þær gefið fróðlega mynd af andlegu ástandi þjóðarinnar. Framboðið af rusli í sjónvarpi er mikið og það segir sig sjálft að þjóð sem horfir á mikið af innihaldslausu drasli er sjálf í rusli.

Það fór því um mig nettur kuldahrollur þegar ég sá heilsíðu auglýsingu frá Skjá einum þar sem fram kom að Innlit/útlit og America´s Next Top Model væru á meðal tíu vinsælustu þáttanna í íslensku sjónvarpi.

Sé raunverulegt fólk á bak við áhorfstölurnar sem skila þessum þáttum inn á listann er ærin ástæða til þess að hafa þungar áhyggjur af andlegu ástandi einhvers hluta þjóðarinnar. Nafn Innlits/útlits segir vitaskuld allt sem þarf að segja um það sem gerjast í kolli þeirra sem á horfa: Sjúkleg gægjuþörf og forvitni um einkahagi náungans og ofur áhersla á útlit, leiktjöld, sýndarmennsku og fals. Lífið hverfist allt um umbúðir sem gera fátt annað en að kæfa hinn innri mann.

Útlitshugmyndafræðin er svo sprengd út í yfirþyrmandi öfgar í fyrirsætuþættinum sem er löðrandi í mann- og kvenfyrirlitningu. Fólk sem skemmtir sér við að horfa á hrokabrussuna Tyru Banks nota fyrirsætudrauma til að tæta í sig stúlkur á barmi taugaáfalls ætti að staldra við og sálgreina sig á fimm mínútum.

Þátturinn er svo ofan í kaupið markaðssettur sem „vinsælasti konuþátturinn“ sem er auðvitað fullkomin þversögn en um leið efni í að minnsta kosti tíu pistla til viðbótar.

Aukaleikarar sem geta verið aðal
Frábærir aukaleikarar eru eitt af því sem gerir Sopranos þættina að því sem þeir eru. Flestir hafa þessir leikarar úr heilmiklu að moða þar sem engu minna púður er sett í persónusköpun þeirra sem fylkja sér um mafíósann þéttholda Tony en hans sjálfs.

Vægi geðlæknisins Jennifer Melfi hefur illu heilli minnkað í þáttunum undanfarið þannig að eðalleikonan Lorraine Bracco verður óhjákvæmilega að flokkast sem aukaleikari í Sopranos þessi dægrin. Auk hennar fara Michael Imperioli (Christopher), Steve Van Zandt (Silvio), Tony Sirico (Paulie), Dominic Chianese (Junior) og Aida Turturro (Janice) iðulega á kostum og sérstaklega eru þeir tveir Imperioli og Sirico lunknir við að stela senunni.

Þessir tveir bakkabræður eru bestir þegar þeir fá að leggja undir sig heilu þættina. Einn besti þáttur bálksins í heild fjallaði um hrakningar þeirra villtra úti í skógi eftir misheppnaða tilraun til að koma rússneskum glæpamanni í hel. Þetta var í raun gamanþáttur af bestu gerð.

Svipaða sögu er að segja af þætti síðustu viku þar sem Christopher gaf sér tíma til að rækta draum sinn um að gerast kvikmyndaframleiðandi með því að funda með leikaranum Ben Kingsley. Kingsley fór á kostum þar sem hann lék sjálfan sig beinlínis eineltan af forheimskum mafíósanum og rúsínan í pylsuendanum var svo þegar gamla drottningin Lauren Bacall, sjálf frú Humprhey Bogart, birtist og varð óverðskuldað skotspónn mafíufautans.

Þessi þáttur var ekkert annað en brakandi snilld fyrir tilstilli gestaleikaranna sem eru í algerum þungaviktarflokki og sælustraumurinn sem hríslaðist um mig við að sjá Bacall blómstra hefði ekki orðið sterkari þó amma mín hefði birst á skjánum innan um eftirlætissjónvarpsfígúrurnar mínar.

Þetta útspil höfunda þáttanna er enn eitt dæmi um hversu auðvelt þeir eiga með að halda sér ferskum og lífga upp á hefðbundna mafíubröltið sem bindur þættina saman.

Góðir þættir á slæmum tíma
Sýningar á annari þáttaröð bandarísku gamanþáttanna Arrested Development eru byrjaðar á Stöð 2 og ekkert nema gott um það að segja. Manni finnst samt einhvern veginn að þessum frábæru þáttum mætti finna fínni stað í dagskrá stöðvarinnar en klukkan hálf ellefu á fimmtudagskvöldum.

Arrested Development eru með frumlegustu og fyndnustu gamanþáttum sem komið hafa frá Bandaríkjunum, höfuðvígi sjónvarpsmenningarinnar, um árabil og ættu því tvímælalaust að flokkast sem svokallað „primetime“ efni. Örlög þáttanna ytra voru þrátt fyrir þetta, illu heilli dapurleg þar sem þeir voru slegnir af nánast í miðjum þriðja árgangi.

Hárfínn og klikkaður húmorinn var víst ekki alveg að skila sér til Kanans þannig að þótt Evrópubúar hafi tekið þáttunum opnum örmum runnu þættirnir sitt skeið of fljótt. Harmakvein og mótmæli dugðu ekki til að bjarga Arrested Development en við njótum þess á klakanum að þættirnir duttu seint í sjónvarp hér þannig að það er enn af nógu að taka.

Arrested Development eru án efa besta fjölskyldugrín frá því Löður var og hét og þættirnir minna um margt á þá eðalsápu enda eru persónurnar í báðum tilfellum svo kengsúrar að það er ekki annað hægt en kolfalla fyrir þeim.

Þá eru handrit þáttanna mikil listasmíð og samtöl persóna og tvíræðir orðaleikir eru meira að segja góðir á breskan mælikvarða. Og til þess að gera gott enn betra er hver leikarinn öðrum betri þannig að það leggst allt á eitt til þess að gera Arrested Development að fyrsta flokks sjónvarpsefni. Væru þessir þættir ekki búnir að vera fáanlegir á DVD um nokkurt skeið væri óverjandi að sýna þá ekki á besta tíma á laugardagskvöldum.

Þegar hótelklám verður valkostur
Þrátt fyrir að vera haldinn sjónvarpsfíkn er ég að gefast upp á stöffinu mínu og þá einmitt efninu frekar en sjónvarpstækjum eða miðlinum sem slíkum. Leit mín að lífsfyllingu með fjarstýringarflakki er að verða æ krampakenndari og örvæntingarfyllri og eins og sakir standa fæ ég kikk út úr The Sopranos og My Name is Earl og þar með er það upptalið.

Ég er ekki með gervihnattasjónvarp, digital, fjölvarp eða hvað þetta heitir allt saman og það hefur hvarflað að mér að ég sé að missa af einhverju og með því að fjölga valmöguleikunum geti ég mögulega fundið lífshamingjuna fyrir framan skjáinn á ný.

Eftir tveggja sólarhringa dvöl á hóteli í Stokkhólmi hef ég komist að því að svo er ekki. Það breytir engu hversu stöðvarnar eru margar einfaldlega vegna þess að leiðindin sem þær bjóða flestar upp á eru áþekk.

Heima flakka ég á milli fjögurra stöðva en í Svíþjóð gat ég skoppað á milli í það minnsta þriggja tuga. Úrvalið var samt meira og minna það sama og heima. Stöðvaflakkið endaði því iðulega á klámrásinni sem hótelið bauð upp á en þeir sem eru sigldir vita að hótelklám er með því sorglegra sem hægt er að reyna að drepa tímann yfir. Þetta er svo gelt og tilgangslaust að það hreyfir hvorki við taugum né holdi og er því eiginlega skömminni verra en harðkjarnaklámið þó ég ætli ekki að vera að mæla því sérstaklega bót.

Þarna áttaði ég mig þó á því hversu mikill missir það er að Sýn skuli ekki lengur sýna ljósbláu myndirnar sem stöðin bauð á sínum tíma upp á. Þær eru ekta hótelklám og maður gat endalaust furðað sig á því hvernig persónur og leikendur gátu stundað munnmök og önnur hvílubrögð án þess að fara nokkurn tíma úr nærbuxunum.

Það er samt auðvitað eitthvað að sjónvarpsdagskránni, lífinu og síðast en ekki síst manni sjálfum þegar hótelklám verður raunhæfur valkostur og maður saknar léttklámsins á Sýn.

Upp með tehettuna!
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra mætti í viðtal við félagana Búa Berndsen og Andra Frey Viðarsson í útvarpsþættinum Capone á XFM í gærmorgun. Vægast sagt ólíklegur viðmælandi í galsafengnum morgunþætti sem gerir út á fíflagang tveggja orðháka.

Björn leggur það ekki í vana sinn að gefa fjölmiðlum færi á sér nema það sé á eigin forsendum en þarna lét hann sig hafa það að sitja undir spurningum um hvort hann hefði neytt eiturlyfja og öðru í þeim dúr. Björn svaraði þessu vitaskuld neitandi og sigldi í gegnum bullið án þess að láta slá sig út af laginu enda hefur hann sjálfsagt verið við ýmsu búinn.

Hann myndi samt varla láta bjóða sér slíkar trakteringar í Íslandi í dag, Kastljósi eða Silfri Egils á venjulegum degi. Þessir dagar eru hins vegar síður en svo venjulegir þar sem byrjað er að hita upp fyrir kosningavetur með prófkjörum en það er aðeins við slík tækifæri á nokkurra ára fresti sem stjórnmálafólk hefur áhuga á að stíga niður úr fílabeinsturninum og gera allt fyrir athyglina og vonandi nokkur atkvæði í leiðinni.

Þessi kómiski kosningaskjálfti minnir mig alltaf á það þegar Jón Ársæll Þórðarson tók hús á Ólafi Ragnari Grímssyni, þáverandi formanni Alþýðubandalagsins, í aðdraganda kosninga fyrir mörgum árum og fékk hann til að setja forláta rússneska tehettu á höfuðið. Fjölmiðlafólk getur dregið pólitíkusa út í alls kyns vitleysu við þessar aðstæður.

Skemmst er að minnast þess þegar stjórnmálaleiðtogar hópuðust í 70 mínútur og drukku ógeðsdrykki hjá Sveppa og Audda. Þetta sama fólk fæst aldrei til að kyngja eigin orðum en lét sig hafa það að kokgleypa viðbjóð. Það voru að koma kosningar.

Það eru því spennandi tímar framundan og dagskrárgerðarfólk á ekki að láta tækifærið úr hendi sleppa. Sýnið okkur mannlegar hliðar á stjórnmálaliðinu! Upp með tehetturnar!

Er lífið fótbolti?
Ég á bágt með að trúa tröllasögunum um að RÚV hafi tryggt sér réttinn á útsendingum frá Evrópumótinu í knattspyrnu árið 2008 með yfirboði sem nemur allt að 100 milljónum og eru sóttar beint í vasa skattgreiðenda og skylduáskrifenda.

Eina raunverulega réttlætingin á sjónvarpsrekstri ríkisins er sá vörður sem batteríið á að standa um íslenska menningu. Samkvæmt frumvarpinu á RÚV að veita 150 milljónum á ári til framleiðslu innlends dagskrárefnis og sú upphæð ætti með réttu að hlaupa á milljörðum ef eitthvert samræmi væri í verðmætamati RÚV sem er tilbúið að greiða 100 milljónir fyrir hálfan mánuð af boltasparki.

Þar fyrir utan eru boltakaupin enn eitt dæmið um hversu kolbrjáluð samkeppnisstaðan er á íslenskum sjónvarpsmarkaði þar sem RÚV hefur geggjað forskot á frjálsu stöðvarnar, djöflast samt á þröngum auglýsingamarkaði og skekkir alla heilbrigða samkeppni með nánast ótakmörkuðum aðgangi að almannafé. Þetta er ekki ósvipað því að taka þátt í sundkeppni og andstæðingurinn er lagður af stað og kominn út í miðja laug áður en maður sjálfur er kominn í sundskýluna, svo maður noti líkingamál sem ætti að skiljast bæði í Efstaleiti og menntamálaráðuneytinu.

Maður gæti svo sem alveg farið í gamlar skotgrafir og býsnast yfir því að það þyki sjálfsagt að puðra 100 milljónum af almannafé til að þjóna háværum og frekum minnihlutahópi. En það er bara svo margt, margt annað sem er móðgun við heilbrigða skynsemi í þessu máli og menn myndu sennilega ekki leyfa sér nema vera í fullvissu um að íslenskur almenningur láti bjóða sér hvað sem er. Undarlegast er vitaskuld að sjálfur Páll Magnússon, sem áður hélt ófáar og innblásnar ræður um brenglaða samkeppnisstöðu þegar hann var hinum megin við borðið, skuli vera svo djarfur að verja nú þessi bolabrögð með kjafti og klóm.