»  kvikmyndir
efnisflokkar

nýleg skrif

nýlegir dómar

a long time ago...
Hefnd Salander
Föstudagur, 19. febrúar 2010

Loftkastalinn sem hrundi
[3]

Með Loftkastalanum sem hrundi lýkur vel heppnaðri bíómyndaþrennu sem gerð er eftir hinum bráðskemmtilegu og spennuþrungnu glæpasögum Stiegs heitins Larssons um pönkaða tölvuhakkarann Lisbeth Salander og blaðamanninn hugprúða Mikael Blomkvist.

»  meira

| 19:08 | föst tilvísun | komment (0) |
Dýrið gengur laust
Föstudagur, 12. febrúar 2010

The Wolfman
[2]

Saga varúlfa í bíómyndum er orðin býsna löng og þeir skjóta reglulega upp sínum úfna kolli undir fullu tungli. Þessi skrímsli hafa þó aldrei átt sömu lýðhylli að fagna og vampírurnar sem þau tengjast óneitanlega nokkuð sterkum böndum. Líklega vegna þess að varúlfana skortir alveg þann seiðandi kynþokka og sjarma sem blóðsugarnar hafa enda eru þeir hrein og klár villidýr sem missa alla mannlega eiginleika þegar þeir umturnast.

»  meira

| 19:06 | föst tilvísun | komment (0) |
Gibson hefur engu gleymt
Þriðjudagur, 02. febrúar 2010

Edge of Darkness
[3]

Fyrir rösklega 20 árum sýndi Ríkissjónvarpið hina sérdeilis prýðilegu spennuþætti Edge of Darkness sem fjölluðu um rannsókn lögreglumannsins Craven á dauða dóttur sinnar sem var í slagtogi með umhverfisaðgerðarsinnum á pari við vitleysingana í Saving Iceland.

»  meira

| 19:04 | föst tilvísun | komment (0) |
Poppaður Sherlock
Sunnudagur, 10. janúar 2010

Sherlock Holmes
[3]

Skoski rithöfundurinn Sir Arthur Conan Doyle kynnti meistaraspæjarann Sherlock Holmes til leiks fyrir rúmlega 120 árum og Holmes hefur látið til sín taka með reglulegu millibili bæði í kvikmyndum og sjónvarpi alla síðustu öld og fjöldi leikara hefur túlkað þennan ofurglögga og útsjónasama glæpamannahrelli.

»  meira

| 19:02 | föst tilvísun | komment (0) |
Carter á eftirlaunum
Miðvikudagur, 06. janúar 2010

Harry Brown
[3]

Lífið er frekar dapurlegt hjá ellilífeyrisþeganum Harry Brown sem á sínum yngri árum var vaskur sérsveitarmaður í breska hernum. Eiginkona hans liggur fyrir dauðanum og eini vinur hans er ofsóttur af ruddalegu unglingagengi sem heldur áður friðsælu hverfi Harrys í heljargreipum.

»  meira

| 18:57 | föst tilvísun | komment (0) |
Toppmaður í vondri mynd
Miðvikudagur, 25. mars 2009

Killshot
[2]

Ferill hins frábæra leikara Mickey Rourke hefur verið vægast sagt brokkgengur, aðallega vegna þess að hann hefur verið sjálfum sér verstur og kosið að sóa hæfileikum sínum í að súpa ýmsar beiskar fjörur lífsins frekar en sinna leiklistinni af raunverulegum metnaði. Það hefur því verið sérstaklega ánægjulegt fyrir trygga aðdáendur kappans að fylgjast með stórkostlegri upprisu hans sem segja má að hafi byrjað fyrir alvöru með meistaratöktum í Sin City árið 2005 og náð hámarki með The Wrestler í fyrra.

»  meira

| 15:37 | föst tilvísun | komment (0) |
Hellingur af testó
Þriðjudagur, 08. maí 2007

300
[3]

Það sem við gerum í lífinu bergmálar í eilífðinni“. Russell Crowe mælti þessi orð í gervi uppdiktaða skylmingaþrælsins Maximus þegar hann hvatti menn sína til dáða í Gladiator. Þessi setning ætti samt miklu frekar heima í kvikmyndinni 300, enda sækir hún markvisst í sögufræga vörn Leonídasar Spartverjakonungs og þrjú hundruð lífvarða hans í Laugaskörðum árið 480 fyrir Krists burð.

»  meira

| 21:33 | föst tilvísun | komment (0) |
Rykið dustað af geggjuðum harðstjóra
Þriðjudagur, 08. maí 2007

The Last King of Scotland
[3]

Stundum kemur það fyrir að Óskarsverðlaunin rata í hendur þeirra sem virkilega hafa unnið til þeirra. Það gerðist um daginn þegar Forest Whitaker fékk verðlaunin fyrir túlkun sína á einræðisherranum Idi Amin í The Last King of Scotland.
Þessi mynd er skólabókardæmi um hvernig frábær leikari getur tekið sæmilega mynd og lyft henni langt upp yfir meðalmennskuna en Whitaker ber myndina alfarið uppi þó að flestir mótleikarar hans standi sig með stakri prýði.

»  meira

| 21:07 | föst tilvísun | komment (0) |
Þreyttur brandari
Þriðjudagur, 08. maí 2007

Mr. Bean's Holiday
[1]

Breskt sjónvarpsgrín er það besta í heimi og framlag Rowans Atkinson til þess verður seint ofmetið, enda hefur hann komið víða við á löngum ferli. Hann hefur aldrei verið betri en í Blackadder á níunda áratugnum en tók síðar góða spretti í stuttum látbragðsþáttum um einfeldninginn Mr. Bean.

»  meira

| 1:13 | föst tilvísun | komment (0) |
Blessuð sólin ...
Þriðjudagur, 06. mars 2007

Sunshine
[4]

Sunshine gerist í náinni framtíð þar sem heldur illa er komið fyrir mannkyninu því sólin er að fjara út og jörðin er ísi lögð. Íbúar heimsins eru þó ekki tilbúnir að leggja upp laupana og frjósa í hel þannig að leiðangur er gerður út á risavaxna geimskipinu Ikarusi. Um borð er tröllvaxin kjarnorkusprengja sem ætlað er að sprengja sólina í gang að nýju.

»  meira

| 21:43 | föst tilvísun | komment (0) |
Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff