»  kvikmyndir  »  The Gift
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
The Gift
Föstudagur, 25. maí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Kvikmyndir sem gera út á pirring hinna framliðnu og alls kyns truflanir að handan hafa átt upp á pallborðið síðustu misseri. Velgengni "The Sixth Sense" ruddi brautina og í kjölfarið fylgdu myndir á borð við "Stir of Echoes" með Kevin Bacon og dauðhreinsuðu bregðumyndina "What Lies Beneath" sem hafði lítið fram að færa nema Harrison Ford í sjaldséðu hlutverki vonda karlsins. Sam Raimi er svo sem ekkert öfundverður að koma síðastur hjakkandi í þessu draugafari, en ferst verkið ágætlega úr hendi, þó hann hafi miðlungshandrit að moða úr. Hann er hins vegar engin bjáni og fáir standast honum snúning í hryllingnum á góðum degi og nægir að nefna "Evil Dead" þríleikinn til vitnis um það. Í "The Gift" nýtur hann svo hæfileika fjölda góðra leikara sem fara létt með að hlaða myndina spennu og dýpt sem lyftir henni vel upp fyrir mörk meðalmennskunnar.

Cate Blanchett ("Elizabeth") er þrusugóð sem smábæjarmiðillinn Annie sem lendir á hálum ís þegar hún verður eini tengiliður lögreglunnar við dularfullt hvarf og morð á brókarsjúkri dóttur eins helsta góðborgara bæjarins. Katie Holmes leikur fórnarlambið Jessicu King og tekst að vera nógu ögrandi og sexí til að koma óheppnu tálkvendinu ágætlega til skila. Katie þessi hefur víst aðallega unnið sér það til frægðar að leika í einhverju "Dawsons Creek" sem mér skilst að sé einhver velluvellingur í sjónvarpinu. Allt gott um það.

Keanu Reeves, sem gerir yfirleitt meira af því að leika illa en vel, er frábær í hlutverki sauðheimsks og ofbeldishneigðs "sveitalúða", þá er hinn lúðalegi Giovanni Ribisi ("Lost Highway", "Saving Private Ryan", "The Mod Squad", "Boiler Room", "Gone in Sixty Seconds"), sem er í persónulegu uppáhaldi hjá undirrituðum, stórfínn í hlutverki truflaðs vinar miðilsins. Mér skilst að annar handritshöfunda myndarinnar Billy Bob Thornton hafi afþakkað þetta hlutverk, enda búin að fá sinn skerf af bæjarfíflum ("Sling Blade", "U Turn"). Þá má ekki láta hjá líða að nefna "skítalabbaleikarann" Gary Cole, ("Office Space"), sem er hér mátulega fráhrindandi og leiðinlegur í hlutverki saksóknara og skítalabba.

Raimi nær upp fyrirtaks óöryggisstemmningu framan af og hryllingurinn er síður en svo allur yfirnáttúrulegur og munar þar mest um djöfulganginn í Reeves. Bregðuatriðum er skotið inn reglulega en þau eru sem betur fer hvorki jafn ofnotuð né innantóm og þau voru í "What Lies Beneath", enda heldur myndin góðum dampi framan af og fer ekki að hiksta fyrr en hyllir undir mjög svo fyrirsjáanleg endalokin, en þar hefur hún þó líka vinningin yfir "What Lies Beneath" þar sem hér sýna menn sóma sinn í að hafa a.m.k. nokkra grunsamlega, ólíkt þessum eina þarna í baðmyndinni.

"The Gift" er sem sagt fyrirtaks skemmtun sem gerir út á gamalreynd spennu/hryllingsmið en fiskar ágætlega þar sem kallinn í brúnni veit hvað hann er að gera og áhöfnin er í toppformi.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff