»  kvikmyndir  »  Along Came A Spider
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Along Came A Spider
Miðvikudagur, 27. júní 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Geðveikt árásaratriði og þreytt ástarvellaÞar sem þetta á að vera spennumynd hefði verið alveg meinlaust að hafa hana meira spennandi, en Morgan Freeman og fagmannleg vinnubrögð bjarga henni fyrir horn. Manni leiðist ekkert yfir myndinni, en gallinn er bara sá að hún hreyfir heldur aldrei við manni, er hvorki ógnvekjandi né sérstaklega spennandi og skilur því ekkert eftir sig.

Morgan Freeman leikur Dr. Alex Cross sem er sérfræðingur í að fást við geðveika morðingja og endurtekur Freeman hér hlutverk sitt úr "Kiss The Girls" frá árinu 1997. Cross dregst inn í rannsókn á ráni á 12 ára gamalli dóttur þingmanns. Mannræninginn er útsmoginn og klár og Cross má hafa sig allan við til að sjá við honum, enda ráðabruggið flóknara en svo að það snúist um örlög einnar lítillar stúlku.

Hin bráðhuggulega Ashley Judd var Freeman til halds og trausts í "Kiss The Girls", nú nýtur hennar ekki lengur við og Monica Potter fyllir skarðið sem leyniþjónustukonan Jezzie Flannigan. Hún skilar sínu sæmilega en virðist vera e.k. vasaútgáfa af Juliu Roberts, sem veit auðvitað ekki á gott.

Líkt og í "Kiss The Girls" á óvissan um hvort það takist að hafa uppi á morðingjnaum áður en hann drepur fórnarlambið að halda okkur við efnið. "Silence of the Lambs" er gott dæmi um mynd þar sem þetta tókst frábærlega og áhorfendur höfðu ástæðu til að óttast um stelpuna ofan í holunni hjá Buffalo Bill, en þetta er því miður ekki að virka hér. Það vantar einhvern veginn alla ógn í þessa mynd og þrátt fyrir að Michael Wincott standi sig prýðilega í hlutverki mannræningjans þá er þetta allt svo sótthreinsað eitthvað og þrátt fyrir góða spretti er myndin alltaf herslumun frá því að lyfta sér yfir meðalmörkin.

Sagan verður svo flóknari eftir því sem á líður og þegar allt stefnir í tóm leiðindi tekur fléttan óvænta stefnu, að vísu (svona eftir á að hyggja) eiginlega hallærislega líkt og í "Kiss The Girls", en samt nóg til þess að rusla einhverju af lausu endunum saman í lokaatriði sem hefði getað orðið mikið sterkara ef undirbyggingin hefði verið traustari. "Along Came A Spider" verður því svona óttalega meinlaus þriller sem er svo sem ágætt að horfa á en maður er ekki heldur að missa af neinu ef maður lætur hana eiga sig.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff