Þriðjudagur, 19. júní 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Smart hryllingur og drungaleg stemmning
"Crimson Rivers" lofar rosalega góđu framan af og gerir skemmtilega út á
ógeđfelld morđ í anda "Se7en". Stemmningin er drungaleg og ţetta er allt
skemmtilega hrollvekjandi og óţćgilegt, en einhvern herslumun vantar samt upp
á ađ myndin hitti í mark og elti mann heim og inn í svefninn eins og
almennilegar hrollvekjur gera.
Jean Reno, traustur ađ vanda, leikur, Pierre Niémans,
gamalreynda rannsóknarlöggu sem rannsakar ógeđfeld morđ, ţar sem fórnarlömbin
hafa veriđ limlest hrottalega á međan ţau voru enn á lífi. Rannsókn hans
rennur svo saman viđ rannsókn hins unga og hvatvísa Max Kerkérian
(Vincent Cassel) sem er á höttunum eftir skríl sem framdi helgispjöll í
grafhýsi ungrar stúlku sem lést 20 árum áđur. Ţađ er ţó ekki allt sem sýnist
og örlög stúlkunnar í grafhýsinu virđast vera lykillin ađ gátunni. Ógeđfelld
rannsóknin leiđir ţá félaga á slóđ kexruglađra vísindamanna, sem virđast einna
helst hafa hugsađ sér ađ taka upp ţráđinn frá Jósef Mengele og álíka
kónum, ţar sem ţeir myndast viđ ţađ í afskekktum fjallaháskóla ađ búa til
fullkominn kynstofn.
Myndin nćr upp mjög óhuggulegri stemmningu. Grátt og drungalegt umhverfiđ
minnir um margt á hina litdaufu og frábćru hryllingsmynd Alans Parkers,
"Angel Heart" og lúmskur hrollurinn er bergmál af ónotunum sem hreiđra um sig
ţegar horft er á "Don´t look Now", eftir Nicholas Roeg. "Se7en" er
samt ađal fyrirmyndin og "Crimson RIvers" sćkir á köflum um of í hana, ţannig
ađ hún getur tćpast talist frumleg á nokkurn hátt.
Reno er eins og fyrr segir rosalega flottur og ábúđarmikill, enda klikkar hann
nánast aldrei. Cassel er svo heilmikill töffari, en ţví miđur er fariđ út í
algerar öfgar og ógöngur viđ ađ undirstrika hversu magnađur töffari Kerkérian
er og ţannig villumst viđ m.a. inn í bjánalegt slagsmálaatriđi sem hefđi sómt
sér vel í mynd međ félaga Seagal en ekki fyrsta flokks hryllingsmynd.
Fleiri svona amerískir töffarastćlar skemma persónu Kerkérians og ţá, ţví
miđur, myndina um leiđ.
"Crimson Rivers" er smart og drungaleg hryllingsmynd, sem nćr oft góđu flugi í
mögnuđum og flottum atriđum. Skyldleikinn viđ "Se7en" er samt full mikill og
ţegar of margir smágallar bćtast viđ fellur ţessi annars ágćta hrollvekja rétt
utan fyrsta flokks og kemur ekki til međ ađ rađa sér í hóp eftirminnilegra
hryllingsmynda.