Laugardagur, 23. júní 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Ótrúleg leiðindi
Höfundar innantómra unglingamynda ætla seint að þreytast á því að blanda
skáldjöfurnum William Shakespeare saman við ömurlega og staðnaða
gelgugrautana sína og "Get Over It" er, að öðrum slíkum myndunum ólöstuðum,
örugglega það allra lélegasta sem komið hefur út úr daðri unglingamynda við
verk leikskáldsins.
"Get Over It" segir frá átakanlega hallærislegum og barnalegum strák sem
missir tökin á tilverunni þegar sæta, fína kærastan hans segir honum upp og
fer að gera sér dælt við tilgerðarlegt og hrokafullt fífl með evrópskan hreim.
Vinir hans reyna af veikum mætti að koma drengnum aftur á sporið, gleyma gömlu
gellunni og snúa sér að öðrum stúlkum. Hann lætur þó ekki segjast og þrátt
fyrir stórfenglegt hæfileikaleysi tekur hann þátt í söngleikjauppfærslu á
"Draumi á Jónsmessunótt", eftir Shakespeare, í þeim tilgangi að heilla aftur
gömlu kærustuna.
Systir besta vinar hans (Kirsten Dunst), sem einnig fer með stórt
hlutverk í söngleiknum, reynir að leiðbeina honum í söng og dansi og áður en
við vitum af er farið að neista milli þeirra, en þau geta bara því miður ekki
þróað samband sitt fyrr en hann hefur sætt sig við að hafa misst af gömlu
kærustunni. Allt er þetta gamalt, þreytt og leiðinlegt og tilraunir til að
láta atburðarásina kallast á við verk Shakespeares gera þetta allt enn
sorglegra.
Kirsten Dunst er frambærileg leikkona og er gjörsamlega úti að aka þarna, enda
óvenju þroskuð miðað við gelgjuhrúga sem umkringir hana. Hinn fornfrægi
gamanleikari Martin Short á ágæts spretti, framan af, en þreytist þegar
líður á seinni hlutann. Það eru stöku brandarar á stangli, sem má brosa að en
ég skil eiginlega ekkert í mér að hafa ekki látið mig hverfa í hlénu.