»  kvikmyndir  »  Pokémon 3
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Pokémon 3
Mánudagur, 18. júní 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Enn af Ash og Pikachu

Þriðja Pókemon myndin er vitaskuld alveg í anda sjónvarpsþáttanna og fyrri bíómyndanna, þannig að við vitum svo sem alveg hverju má eiga von á; krakkarnir skemmta sér auðvitað konunglega og foreldrarnir verða bara að láta sig hafa það að sitja undir dellunni með þeim. Þriðja myndin má þo eiga það að hún er ekki alveg jafn sýrð og mynd númer tvö, þannig að það er svo sem engin hætta á að þeim fullorðnu verði meint af þessu.

Hellingur af nýjum Pókemonum koma við sögu í myndinni þ.á.m. hinir dularfullu Unown, sem minna einna helst á fljótandi stafasúpu og gera út á drauma og langanir fólks og láta þetta allt saman rætast í e.k. sýndarveruleika, en afleiðingarnar geta orðið skelfilegar. Unown nær tökum á ungri stúlku og setur allt á annan endann með því að uppfylla óskir hennar og ástandið verður svo slæmt að prófessor Oak (aðal Pókemon sérfræðingurinn) og mamma hans Ash mæta á vetvang, auk þess sem Ash, Pikachu, Brok og Misty villast inn í atburðarásina og eiga auðvitað stærstan þátt í að leysa vandann og bjarga þá væntanlega um leið heimsbyggðinni, eina ferðina enn. Skúrkarnir, Jesse, James og Meowth í Team Rocket, stela senunni eins og venjulega, enda lang skemmtilegustu týpurnar í þessu frekar þunna galleríi og svo kemur Charizard, sem er sjálfsagt einna flottasti Pókemoninn, með smá töff í dæmið í lokin.

Stuttmyndin um Pikachu á undan er vitanlega drepleiðinleg eins og alltaf áður, en Pókemonið hefur samt oft verið vitlausara og leiðinlegra, þannig að þeir foreldrar sem hafa óhjákvæmilega fengið innsýn í þessa furðuveröld í gegnum börn sín, ættu jafnvel á köflum að geta tekið þátt í spennunni með krökkunum.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff