»  kvikmyndir  »  Spy Kids
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Spy Kids
Þriðjudagur, 26. júní 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Hinn hressilegi leikstjóri Robert Rodriguez stimplaði sig inn með ofbeldisorgíunum "El Mariachi" og "Desperado" og á einnig að baki táningahryllingin "The Faculty" og hina bráðskemmtilegu blóðsugumynd "From Dusk Till Dawn", en hér kemur hann skemmtilega á óvart með stílfærðri og meinlausri spennumynd sem ætti að höfða til allra á aldrinum 8-67 ára.

"Spy Kids" segir frá hjónunum Gregorio og Ingrid Cortez (Antonio Banderas og Carla Gugino). Þau voru bestu njósnarar heims en lögðu þetta krefjandi starf á hilluna þegar þau gengu í hjónaband og eignuðust börn. Fortíðin nær í hælana á þeim 9 árum síðar og þau neyðast til að taka að sér hættulegt verkefni. Þau eru því miður ekki jafn skörp og þau voru áður og vondu kallarnir ná þeim nánast áður en þau komast af stað. Þegar börnin þeirra Carmen (Alexa Vega) og Juni (Daryl Sabara) komast að því að foreldrar þeirra eru ofurnjósnarar taka þau málin í sínar hendur og reyna að bjarga mömmu og pabba og heimsbyggðinni allri í leiðinni.

Hressir leikarar í léttri mynd

Þau Vega og Sabara standa sig með prýði í hlutverkum krakkanna, voða svona kúnstugir og krúttlegir krakkar og allir aðrir leikarar virðast skemmta sér hið besta, brosa út í annað og fara í gegnum rullur sínar mátulega kæruleysislega og allt skilar þetta sér til áhorfandans sem kemst ekki hjá því að smitast af leikgleðinni og taka þátt í ævintýrinu, en myndin er öll léttleikandi og full af eltingarleikjum og spennandi atriðum, þar sem alls konar tæki og tól í anda James Bond gegna veigamiklu hlutverki. Þá eru skúrkarnir einnig náskyldir brjáluðum andstæðingum njósnara hennar hátignar, en þeir eru æði skrautlegir, kolgeðveikir og stefna að sjálfsögðu á heimsyfirráð.

Carla Gugino er flott í hlutverki mömmunnar, bæði sæt og svöl, og Banderas fílar sig greinilega í tætlur sem hinn ofursvali Gregorio. Þá er skoski leikarinn Alan Cumming (Boris í "GoldenEye") bráðskemmtilegur í hlutverki hins snælduvitlausa barnaþáttastjórnanda Fegan Floop, sem er barnalegur leiksoppur aðalskúrksins.

Rodriguez og Banderas hafa unnið áður saman með góðum árangri ("Desperado") og Rodriguez skreytir "Spy Kids" einnig með fleiri leikurum sem hann hefur unnið með áður. Cheech Marin á þannig stutta og skemmtilega innkomu og gamli tukthúslimurinn og harðjaxlinn Danny Trejo ("Desperado", "From Dusk Till Dawn", "Con Air", "Heat", "Replacement Killers") er bæði flottur og skemmtilegur sem vöðvaður og tattóveraður brellumeistari í stíl við gamla Q úr Bondmyndunum.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff