»  kvikmyndir  »  The Emperor´s New Groove
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
The Emperor´s New Groove
Föstudagur, 01. júní 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Kúzkó keisari er átján ára gamall og er vanur því að fá allt upp í hendurnar og hjá honum kemst það eitt að að skemmta sér og dekra við sjálfan sig, helst á kostnað annarra. Nýjasta dellan hans er að reisa sér glæsilegt sumarhús með sundlaug á sólríkustu hæð ríkis síns. Hann þarf að vísu að ryðja burt smá þorpi sem er þar fyrir, en það er ekkert tiltökumál. Hinn dagfarsbrúði og góðhjartaði lamahirðir Pacha er í forsvari fyrir þorpsbúa og reynir árangurslaust að telja keisaranum hughvarf. Kúskó hefur hins vegar fleiri járn í eldinum og tekur upp á því að reka ráðgjafa sinn, kerlingarherfuna hana Yzmu, sem var orðin full ráðrík. Yzma sættir sig ekki við framkomu keisarans og ásamt sauðheimskum fylgdarsveini sínum, honum Kronk, ákveður hún að ræna völdum og koma Kúzkó fyrir kattarnef.

Þau eitra fyrir keisaranum, en eins og oft vill verða í Disney myndum, mislukkast svoleiðis ráðabrugg (sbr. "Herkúles") og í stað þess að geyspa golunni breytist Kúzkó í talandi lamadýr. Hann lendir svo á vergangi, þar sem Pacha verður hans eina von um að endurheimta aftur ríki sitt og fyrra útlit. Svo rúllar þetta bara áfram með hefðbundnu Disney glensi og gríni, keisarinn þroskast heilmikið sér að sér og verður betri maður þegar upp er staðið. Semsagt gömul lumma á ferðinnni, en teiknistíllinn er skemmtilegur og fíflagangurinn svolítið meira út úr kú en gengur og gerist, þannig að myndin verður hin besta skemmtum bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Talsetningin er vel unninn, eins og alltaf, þó það skemmi auðvitað svolítið fyrir þeim eldri að þurfa alltaf að hlusta á sömu íslensku leikarana í öllum þessum myndum og þeir sem ekki eru bundinir yfir börnum ættu hiklaust að skella sér á ensku útgáfuna, þar sem David Spade talar fyrir Kúzkó, snillingurinn John Goodman fyrir Pacha og gamla söngnornin Eartha Kitt ljær ófétinu henni Yzmu rödd sína.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff