Laugardagur, 30. júní 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Hver er hræddur við Keanu Reeves?
Það fer pappaspjaldinu Keanu Reeves afskaplega illa að túlka
raðmorðingja. Hann er eins og venjulega gersneyddur allri tilfinningu og
nærvera hans verður aldrei ógnvekjandi. Hinn alltof sjaldséði James
Spader er hins vegar stórfínn í hlutverki löggunnar en nær þó ekki að
lyfta þessari rútínumynd yfir mörk meðalmennskunnar. Óskarsverðlaunahafinn
Marisa Tomei hefur elst svolítið síðan síðast en er býsna hugguleg í
hlutverki geðlæknis, sem dregst inn í átök löggunnar og brjálæðingsins, og er
ekkert nema gott um framlag hennar að segja.
Keanu leikur snælduvitlausan raðmorðingja, en þar sem Keanu leikur hann verður
maður aldrei neitt sérstaklega var við að hann sé klikkaður. Hann styttir sér
stundir með því að kyrkja ungar konur með píanóstrengjum og hefur eiginlega
ekkert sérstaklega gaman af þeirri iðju nema Spader sé á hælum hans. Þeir eiga
nefnilega dálitla fortíð en Spader var nálægt því að ná honum nokkrum árum
áður en gafst upp eftir að kærastan hans féll í viðureign þeirra. Spader er
veikur á sál og líkama með endalaus mígrenisköst og gengur til geðlæknis.
Hann hressist hins vegar til muna þegar Reeves æsir hann upp í leik kattarins
að músinni og gefur honum smá forskot til að hafa upp á fórnarlömbunum áður en
hann lætur til skarar skríða. Þetta gæti sjálfsagt verið allt í lagi, en
myndin verður bara aldrei spennandi. Maður lekur bara niður í sætinu og bíður
eftir hefðbundnum endalokunum. Raðmorðingjamyndir virðst vera komnar í algert
þrot en þetta er þriðja spennulausa raðmorðingjamyndin sem rekur á fjörur
okkar síðustu mánuði; "Hannibal" var alveg marflatur, "Along Came A Spider"
var dofin og "The Watcher" er nánast leiðinleg, enda óhrein steikarpanna
líklegri til að skjóta manni meiri skelk í bringu en blessaður ræfillinn hann
Keanu Reeves.