»  kvikmyndir  »  Valentine
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Valentine
Sunnudagur, 24. júní 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Hefnd nördsins

Það er nú ekki hægt að segja mikið um þessa mynd annað en að hér er margendurtekið efni á ferðinni; geðveikur morðingi með hníf eltir sæta stelpu og ekkert er gert til að brjóta formúluna upp. Lítið spenanndi og enn minna fyndið en Denise Richards spókar sig aðeins í sundfötum og það gæti kætt einhverja - annars leiðindi.

Maður hafði það einhvern veginn á tilfinningunni að "Valentine" gæti orðið ágætis hrollur, en því miður er bara ekkert nýtt að gerast og gamla klisjan er ekki einu sinni neitt sérstaklega vel útfærð. Morðinginn dúkkar upp með reglulegu millibili og kálar einhverjum og þau atriði ná ekki einu sinni að verða spennandi og samúðin með fórnarlömbunum er lítil, þannig að manni er eiginlega alveg sama hverjir lifa eða deyja. Myndin gengur bara þennan hefðbundna vanagang, jafn formföst og klámmynd, þannig að það kemur aldrei neitt á óvart og fléttan er svo afgreidd snarlega í leiðinlegu lokaatriði.

Söguþráðurinn er svo sem ekkert vitlausari en gengur og gerist í "slasherum" af þessu tagi. Sætu stelpurnar í skólanum eru voða vondar við litla, ræfilslega nördinn, sem fer á hæli, hverfur af yfirborði jarðar og snýr svo aftur mörgum árum síðar í hefndarhug og drepur vondu gellurnar hverja á fætur annari. Gallinn hér er samt sá að þetta skelfilega bernskubrek þeirra, að vilja ekki dansa við einhvern væskil á Valentínusardansleik, er frekar ómerkileg ástæða fyrir morðöldunni sem fylgir í kjölfarið - maður reiknaði nú með að þær hefðu gert honum eitthvað virkilega illt, en er svikinn um það.

Morðinginn er hallærisleg stæling á elsku kallinum honum Michael Myers, sem gert hefur garðinn frægan í hátt á tug Halloween-mynda, en Valentínusarmorðinginn er auðvitað ekki "hrein illska" eins og fyrirmyndin, heldur bara nörd með blóðnasir og barnalega Amorsgrímu. Skerí!.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff