A.I.
Þriðjudagur, 17. júlí 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Snilldartaktar og leiðindi í bland
"A.I." var
gæluverkefni hins sérlundaða leikstjóra Stanley Kubrick, til margra
ára, en hann geyspaði, því miður, golunni áður en hann gat komið sýn sinni á
"A.I." á filmu. Einn farsælasti leikstjóri Hollýwúddsins, Steven
Spielberg, tók við kyndlinum og verkefnið hefur greinilega verið ofvöxnu
barnshjarta hans ofviða. Hann missir t.d. öll tök á vellunni og væmnum þáttum
sögunnar, eitthvað sem Kubrick hefði ekki gert, og tilhugsunin um það hvernig
Kubrick hefði gert myndina sækir stöðugt á mann. Það er sennilega engin
spurning að hún hefði gengið betur í mann ef Kubrick hefði gert hana. Grimmd
sögunnar og miskunarleysi hefði orðið magnaðara og væmninni hefði verið haldið
betur í skefjum, auk þess sem Kubrick var auðvitað meistari í að matreiða
torskilin, langdregin og flókin leiðindi á snilldar hátt. Slíkur hæfileiki
hefði óneytanelega komið sér vel hér.
Spielberg í skugga Kubricks
Spielberg gætir þess þó vissulega að sýna Kubrick tilhlýðilega virðingu,
stælir hann og vísar markvisst í verk meistarans. Hann er hins vegar einnig
voðalega upptekin af sjálfum sér og það má vart milli sjá hvort hann vísar
meira í sjálfan sig eða Kubrick heitinn. Spielberg var einhvern tíma
skemmtilegasti leikstjórinn sem starfaði í Hollywood og tókst með barnslegri
einlægni sinni að töfra fram hverja snilldarmyndina á fætur annarri, en eftir
því sem árin liðu hafa verk hans orðið býsna lituð af sjálfumgleði hans og í
"A.I." tekst honum allt nema að "skemmta" (í Spíelbergískum skilningi þess
orðs sbr. "E.T.", "Raiders of the Lost Ark", "Jurassic Park") áhorfendum,
þannig að hann ætti að fara að hugsa sinn gang alvarlega.
Góð hugmynd sem virkar fram að hléi
"A.I." vísar stíft í ævintýrið um Gosa, sem er hið besta mál, og sagan
nær ágætis siglingu framan af, jafnvel þó Spielberg missi sig aðeins í
væmninni. Haley Joel Osment túlkar véldrenginn David, sem á þá
ósk heitasta að verða raunverulegur drengur, snilldarlega. En þrátt fyrir
ótvíræða hæfileika og ótrúlega dýpt, miðað við aldur, held ég að flestir verði
orðnir hundleiðir á drengnum eftir 2-3 myndir til viðbótar. Hann var að vísu
frábær í "The Sixth Sense" og býsna frambærilegur í hinni leiðinlegu "Pay it
Forward" en hann er samt þegar byrjaður að hjakka í einhverri ofureinlægni og
endar því sjálfsagt sem jafnþreytt fyrirbæri og Macaulay Culkin.
Myndin stendur þó ekki og fellur með Osment, heldur er það hinn lúmski
senuþjófur Jude Law, í hlutverki gervimannsins Gigalo Joe, sem
gerir mest fyrir hana og á meðan Joe er á tjaldinu ætti engum að leiðast.
Persónan er frábær og verður algerlega ógleymanleg í meðförum Law. Þá er Joe
býsna Kúbrískur og gæti þessvegna hafa komið skoppandi beint út úr "A
Clockwork Orange". Svo er þarna líka lítill sætur leikfanga bangsi,
Teddy, sem er e.k. Tumi Engispretta og krúttleg nærvera hans
gefur myndinni ákaflega fallegan og mjúkan ævintýrablæ. Osment er semsagt fínn
en Bangsi og Jude Law eru sætastir og bestir og saman eru þeir tvímælalaust
það lang besta við þessa mynd.
Rosalega flott mynd...
"A.I." er heint út sagt ógeðslega flott og sjónrænt séð er hún nánast
fullkomin, en handritið er hálfgerð endaleysa og teygður lopi í framvindunni
ásamt þreytandi sjálfshóli Spielbergs draga hana niður og gera það af verkum
að ef fólk hefur, á annað borð, ekki áhuga á vísindaskáldskap, flottum brellum
og háfleygum pælingum um eðli lífsins og tilverunnar verður myndin því miður
býsna langdregin og leiðinleg. Þannig að það hefði verið snyrtilegra ef
Kubrick hefði gert myndina, enda vita allir hvað hann stendur fyrir og þá
hefðu einungis þeir farið að sjá hana sem hefðu virkilega viljað sjá hana, en
þar sem skemmtikrafturinn Spielberg er kominn með puttana í þetta er hætt við
að margir fari á "A.I" á kolröngum forsendum og verði svaka fúlir.