Föstudagur, 20. júlí 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Meira af því sama... veiiii
"American
Pie 2" eyðir engum tíma í að kynna aðalpersónurnar aftur til
leiks
og grínið og fíflagangurinn heldur áfram eins og gert sé ráð
fyrir
að maður hafi séð fyrri myndina í gær. Þetta kemur þó varla að
sök þar sem það er lítil hætta á að fólki sem leiddist fyrri
myndin
fari að sjá framhaldið en jafnvíst að þeir sem skemmtu sér á
"American
Pie" missa ekki af þessari. Framhaldsmyndin er ekki jafn
heildstæð
og fyrri myndin (ekki það að hún hafi verið neitt rosalega
þétt)
og hér er frekar um ósamstæða runu af bráðskemmtilegum
uppákomum
í lífi hinna gröðu félaga, sem báru fyrri myndina uppi, að
ræða.
Jason Biggs er sem fyrr í brennidepli sem hinn seinheppni Jim
sem á ekki sjö dagana sæli í kynlífinu, þrátt fyrir að njóta jafnan
"heilbrigðrar" leiðsagnar hins kostulega föður (Eugene Levy frábær að
vanda) síns. Feðgarnir sjá svo, ásamt snillingnum Seann William Scott
("American Pie", "Road Trip", "Dude, Where´s My Car?), sem er að verða
ómissandi í svona bjánalegum unglingamyndum, um að maður taki reglulega
bakföll af hlátri.
Framleiðendum myndarinnar hefur tekist að smala saman öllu genginu úr fyrri
myndinni, sem er hið besta mál, enda hefði varla verið hægt að ná sömu
stemningunni upp aftur ef fyrirbærið Finch, sem er í fullkomnum takti
við kýnlífsmenningu Íslendinga og tantrar af miklum móð, flautusnillingurinn
Michelle, en ofurfagra Vicky og hin vergjarna Nadia hefðu
látið sig vanta. Einu leikararnir sem gera ekkert af viti fyrir myndina og
hefðu að ósekju mátt láta sig vanta eru Chris Klein (Oz) og
"American Beauty" stjarnan Mena Suvari (Heather). Suvari er
greinilega orðin of stór fyrir svona myndir og má ekkert vera að þessu og er
því send í frí til Evrópu og er einungis með til málamynda. Og þar sem Oz og
Heather eru fyrirmyndar par sem ætlar alltaf að vera saman hefur Oz lítið að
gera með félögum sínum, þar sem eina kynlífið sem hann á færi á að stunda er
misheppnað símasex með sinni heittelskuðu. Döprustu augnablik þessarar ágætu
grínmyndar eru því atriðin með þessum turtildúfum sem eru alveg úr takt við
aðrar persónur sem ganga á greddunni einni saman.