Föstudagur, 27. júlí 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Zzzzzzzzzzzzzzzzzzz...
Angel Eyes
Jenifer
Lopez leikur lögreglukonuna Sharon Pogue sem er heilmikið hörkutól. Henni gengur illa að kynnast karlmönnum og sá eini rétti virðist ekki leynast í sjálfumglöðu og uppskrúfuðu úrvali Chigacoborgar. Dularfullur og drungalegur náungi sem kallar sig Catch eltir hana á röndum, sem kemur sér ágætlega þar sem hann bjargar lífi hennar fyrir, að því er virðist, algera tilviljun einn góðan veðurdag.
Þau byrja í kjölfarið að þróa samband sín á milli en það gengur svona upp og
ofan enda bæði skelfilega krepptir einstaklingar; Sharon hefur verið útskúfað
úr fjölskyldu sinni vegna þess að hún reis upp gegn ofbeldisfullum föður
sínum, sem var duglegur að lemja mömmu hennar í klessu, og Catch virðist vera
hálfgerður svefngengill, fáviti og e.k.
Forrest Gump þar sem hann
vafrar um borgina þungur á svip, með skeggbrodda í ljótum frakka og reynir að
vinna góðverk. Undarlega hegðun hans virðist svo einna helst mega skýra þannig
að hann hafi misst minnið eftir hræðilegt bílslys.
Sagan drattast svona áfram með tilheyrandi skini og skúrum í sambandi þessa
brenglaða kærustupars þar til það kemur loksins að uppgjöri Catch við
fortíðina. Það gengur hratt og vel fyrir sig, sem er ólíkt alburðarás
myndarinnar sem er svo hæggeng og villuráfandi að ég náði að setja tvö met í
Snake II í símanum mínum á meðan J.Lo og Catch tóku til í sínum málum. Framan
af gerði ég mér vonir um að myndin næði að kveikja einhvern áhuga hjá mér og
jafnvel skapa spennu (Catch hefði t.d. getað verið alveg fyrirmyndar
geðsjúklingur og þá hefði myndin mögulega getað tekið áhugaverða stefnu) en
eftir þrjú kortér var lítið annað að gera en spila Snake og bíða eftir að
ósköpin kláruðust.
Jenifer Lopez er eins og fyrr segir eini ljósi punkturinn í þessari leiðinda
loðmullu. Hún er enn voðalega sæt og sexý en maður nennir ómögulega að sitja í
tvo tíma yfir henni og fallegu brosinu, ef hún hefði tínt af sér spjarirnar
hefði maður kannski gengið glaður út. "Angel Eyes" er að öllum líkindum
leiðinlegasta mynd latíngellunnar til þessa og er þá töluvert sagt þar sem
síðustu tvær myndir hennar voru steypuhræringurinn "The Cell" og bleika
glassúrklígjan "The Wedding Planner". Þetta er auðvitað grátlegt þar sem Lopez
var frábær í myndunum "U Turn" og "Out of Sight" og allt benti til þess að
metnaðarfull leikkona væri á ferð og nafn hennar væri viss gæðastimpill. Þetta
er heldur betur að snúast við og eftir að Jenifer Lopez varð J.Lo og
fór að leggja megináherslu á froðupopp hefur leikferillinn tekið dýfu niður á
við og nafn stúlkunnar fer að verða ákveðin aðvörun um að það sé ekki tímans
virði að horfa á myndirnar hennar.
| 21:56 |