»  kvikmyndir  »  Blinkende Lygter
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Blinkende Lygter
Föstudagur, 13. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Tilvistarkreppa smákrimma

Danir eru alltaf að sanna sig betur og betur í glæpamyndadeildinni og "Blinkende Lygter" er, þrátt fyrir að vera afskaplega einföld og fyrirsjáanleg, með skemmtilegri myndum í kvikmyndahúsum um þessar mundir. Ofbeldið er ruddalegt og húmorinn danskur og það er synd og skömm ef unnendur gráglettinna glæpamynda missa af henni. Persónur myndarinnar eru hreint út sagt dásamlegar og vinirnir fjórir í þungamiðjunni eru kostulegar steríótýpur hinna ýmsu gerða smáglæpamanna, sem leikararnir gera frábær skil.

Torkild er forsprakki fjórmenningaklíkunnar. Hann er hálfmisheppnaður glæpon og þegar hann stendur á fertugu og hefur misst kærustuna í klærnar á blaðamanni fyllist hann mikilli angist, vill snúa baki við glæpalífinu og opna eigin veitingastað eða eitthvað álíka. Hann stendur illu heilli í skuld við "Færeyinginn" sem er svakalegur ruddi og stórhættulegur glæpaforingi. Bara það eitt að Færeyingur sé aðal vondi kallinn er eitthvað svo dásamlega á skjön við stórglæponana í amerísku myndunum og í hópi bófaforingja kvikmyndasögunnar er færeyingurinn óneitanlega sér á parti. Færeyingurinn lætur Torkild greiða skuldina með því að ræna skjalatösku sem inniheldur nokkrar milljónir. Torkild fremur ránið með vinum sínum þremur; ofbeldismanninum Arne (kostuleg týpa sem maður getur ekki annað en fallið fyrir þó hann sé ruddinn í hópnum), kókaínfíknu væluskjóðunni Peter og hinum einfalda Stefan sem er alveg undir hælunum á kærustunni. Þeir ákveða að stinga færeyinginn af og skila ekki peningunum. Atvikin haga því svo þannig að þeir hefja veitingarekstur úti í sveit. Þeir aðlagast afslöppuðu sveitalífinu vel, horfa á "Matador", drekka bjór og skjóta beljur og íkorna með vélbyssum. En færeyingurinn hefur ekki sagt sitt síðasta orð...

Sagan er skondin, en framvindan er, eins og fyrr segir, fyrirsjáanleg og lýtur hefbundum lögmálum mynda af þessu tagi. Frábærir leikarar, dásamlegar persónur og fallegur boðskapurinn í allri vitleysunni og ofbeldinu gerir "Blinkende Lygter" að góðri skemmtun sem gleymist ekki alveg um leið og gengið er út úr salnum. Myndin sver sig vissulega í ætt við skólann sem kenndur er við Tarantino enda er hún keyrð áfram á skemmtilegum samtölum, skondnum persónum og grófu ofbeldi. Þeir sem fíla myndir í þessum anda ættu að sjá þessa, líka þeir sem hata dönsku og forðast allt danskt nema skinku og bjór.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff