»  kvikmyndir  »  Bridget Jones´s Diary
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Bridget Jones´s Diary
Föstudagur, 06. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Kostulegt bröltiđ á Bridget Jones

Ţetta er bráđskemmtileg gamanmynd um ástarvandrćđi hinnar stórskemmtilegu og kúnstugu brussu Bridget Jones. Myndin er auđvitađ vođa mikiđ í anda "Four Weddings and a Funeral" og "Notthing Hill" en ţađ er ţó mikiđ meiri broddur í ţessari og hún höfđar óneitanlega ögn sterkar til kvenna en karla, ţó ţađ komi ekkert ađ sök. Myndin er bara einfaldlega frábćrlega leikin, skemmtilega skrifuđ og er á köflum alveg drepfyndin. Ţađ má sjálfsagt verja ţađ ađ hún sé svona "konumynd" og konur virđast skemmta sér sýnu betur á henni en karlmenn. Ćtli ţađ megi ekki segja ađ körlum ćtti ađ geta fundist myndin stórfín en konur fara sennilega nćr ţví ađ telja hana bókstaflega frábćra, enda skilst mér (á konum auđvitađ) ađ nánast hver einasta kona í kringum ţrítugt, einhleyp eđa ekki, kannist viđ eitthvađ af sjálfri sér í hinni kostulegu Bridget Jones.

Renée Zellweger hefur fullkomin tök á Bridget og ţađ er vandséđ ađ hćgt hefđi veriđ ađ finna betri leikkonu í hlutverkiđ. Hugh Grant sýnir á sér nýja hliđ, en hann er aldrei ţessu vant ómerkilegur flagari, en ekki hinn viđkvćmi sístamandi rómantíker. Sjarmör Bretlands númer eitt, tvö og ţrjú, Colin Firth er svo kletttraustur í hlutverki hins ţurra og geđvonda Mark Darcy sem er svo ömurlegur ađ hann gćti einfaldlega veriđ sá eini rétti fyrir hana Bridget okkar. Snillingurinn Jim Broadbent ("Borrowers", "Little Voice") er svo kostulegur, ađ vanda, í hlutverki föđur Bridgetar.

"Dagbók Bridgetar Jones" er sćt, rómantísk gamanmynd sem svíkur engan og kostulegar uppákomur í lífi Bridgetar og flumbrugangurinn í henni eru óborganleg skemmtun, fyrir konur og karla. Ţetta er rómantíska gamanmyndin sem á eftir ađ rúla í sumar.


| 21:56 |

Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff