»  kvikmyndir  »  Brother
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Brother
Mánudagur, 09. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Töffarinn Takeshi kemur til Ameríku

Takeshi Kitano er eitursvalur náungi frá Japan sem leikstýrir, skrifar og leikur í ansi sérstökum myndum sem einkennast af löngum þögnum, rólegri stemmningu og harkalegu ofbeldi inn á milli. "Brother" er dæmigerð fyrir þetta; miskunarlaus, afslöppuð, full af andstæðum og dásamlega svörtum Þetta er þrælskemmtileg og öðruvísi ofbeldismynd en við fáum venjulega í bíó. Takeshi er yndisleg týpa, hokinn í alltof stórum jakkafötum, með óræðan svip. Hann lítur eiginlega út fyrir að vera mesta meinleysisgrey, en er heldur betur harður í horn að taka.

Það er freistandi að bera Kitano saman John Woo, annan austrænan ofbeldissnilling. Myndir Woos eru hraðar og byssuhvellrinir verða eiginlega að samfelldu undirspili glæsilega útfærðra byssuballetta. Kitano lullar hins vegar áfram og ofbeldið blossar fyrirvaralasut upp, mikið grafískara og raunverulegra en hjá félaga Woo. Sérstakur stíll hans gerir það af verkum að það er varla hægt að flokka myndir hans sem hreinar ofbeldismyndir. Það skín eitthvað fallegt í gegn og stemmningin getur á köflum orðið nánast hugguleg. Hann blandaði fallegri stemningu og ofbeldi skemmtilega saman í "Fireworks" og það sama má segja um "Brother", sem er þó krydduð mikið meiri húmor, sem er að vísu kolsvartur og hið mesta sælgæti fyrir þá sem slíkt kunn að meta.

Kitano leikur "stóra bróðurinn" Yamamoto sem er liðsmaður í Yakuza. Hann er harðari en andskotinn og gefur aldrei eftir, en þegar foringinn hans er drepinn verður hann að fara í útlegð til Bandaríkjanna eða deyja ella. Þar hefur hann upp á lilta bróður sínum, sem er minniháttar dópsali og áður en þumbaralegir smákrimmarnir fyrir vestan vita hvaðan á þá stendur veðrið er Yamamoto búinn að leggja markaðinn undir sig. Hann er lítið fyrir formlegheit og að fara eftir lögum og reglum undirheimanna og drepur bara alla sem verða á vegi hans. Uppgangur bróðurins og blandaða gengisins hans (Japanir og blökkumenn) verður að lokum svo mikill að árekstur við ítölsku mafíuna er óumflýjanlegur og þá hitnar heldur betur í kolunum, harkan eykst og líkin hrannast upp.

Omar Epps og Kitano ná skemmtilega saman og samband ólíkra persóna þeirra, sem byrjar fremur illa, verður þungamiðja myndarinnar, sem minnir um margt á snilldarverk Abels Ferrara, "The King of New York" framan af á meðan Kitano og félagar hasla sér völl á fíkniefnamarkaðnum. "Brother" er fyrirtaks glæpamynd. Smart, afskaplega sérstök og full af krassandi ofbeldi og svörtum húmor sem lyftir henni langt upp fyrir hefðbundna byssubardaga- og slagsmáladraslið sem venjulega er borið á borð vestrænna bíógesta.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff