»  kvikmyndir  »  Elling
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Elling
Mánudagur, 30. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Norsk perla

Félagarnir Elling og Kjell-Bjarne eru herbergisfélagar á Kleppi og líf þeirra tekur stórkostlegum breytingum þegar þeir eru látnir standa á eigin fótum og fengin íbúð til að búa í í bænum. Þetta er ekkert smámál enda þora þeir varla út í búð og það eitt að svara símanum er þeim fullkomlega ofviða. Tilraunir þeirra til að fóta sig í samfélaginu eru hreint út sagt kostulegar, auk þess sem samskipti þeirra tveggja eru drepfyndin, falleg og hlý, en það sama má einnig segja um myndina í heild sinni; hún er drepfyndin, falleg og hlý.

Persónur vitleysinganna Ellings og Kjell-Bjarne eru býsna vel gerðar af hendi höfundar og leikararnir skila þeim af svo hárfínni næmni og innsæi að þeir verða aldrei væmnir eða hallærislegir, heldur eru þeir þvert á móti svo yndilsegir að það er ekki hægt að komast hjá því að falla fyrir þeim og taka þátt í gleði þeirra og sorgum af heilum hug. Myndir af þessu tagi geta dottið í óteljandi klisupytti og tapað sér ýmist í óhóflegri væmni eða fíflagangi, en hér er þessu öllu haldið fullkomlega í skefjum þannig að eftir stendur mannlegasta, skemmtilegasta, fyndasta og hlýjasta mynd sem ratað hefur íslenskt kvikmyndahús í lengri tíma. Og hún er norsk!! Þetta er ótrúlegt en satt og það er harðbannað að missa af "Elling".


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff