Miðvikudagur, 04. júlí 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Draugabanar slást
við geimverur
Þetta er stórskemmtileg mynd um hóp vísindamanna og vitleysinga sem þurfa að
bjarga Jörðinni frá stórhættulegu lífformi utan úr geimnum. Þetta er auðvitað
gömul tugga en myndin tekur sig sem betur fer ekki hátíðlega og leikararnir
eru meðvitaðir um fáránleika viðfangsefnisins og ná góðu flugi í fíflaganginum.
Það er auðvitað ekkert eðlilegra en að sjá David Duchovny kljást við
geimverur og það truflar því hvorki hann né áhorfendur að hann sé fyrir löngu
runnin saman við Fox Mulder sem hann hefur leikið árum saman í
"X-Files". Hann er rétti maðurinn til að halda litskrúðugu
geimverubanagenginu saman og við treystum honum fullkomlega til að bjarga
heiminum. Duchovny er þó ekki leikari sem getur borið uppi heila mynd og hann
þarf þess svo sannarlega ekki hér og það kemur í hlut þeirra Orlando
Jones og Seann William Scott að sjá til þess að okkur leiðist
aldrei.
Jones sást síðast í "Say It Isn´t So", þar sem hann bar af öllum öðrum í
hlutverki fótalaus hasshaus og Scott er snillingur í að leika einfalda
fábjána, sem maður getur ekki annað en hrifist af, en hann hefur túlkað slíka
gaura nokkrum sinnum m.a. í "American Pie", tímamótaverkinu "Road Trip" og
meistaraverkinu "Dude Where´s My Car". Þá er Julianne Moore ágæt sem
yfirmaður heilbrigðiseftirlitsins og skúrkurinn og raðmorðinginn Ted
Levine ("Silence of the Lambs") fer létt með að skila þröngsýnum og
napalmsjúkum hershöfðingja sem við elskum að hata.
Allt er þetta gott og blessað og myndin hin besta skemmtun og minnir um margt
á "Ghostbusters" sem Ivan Reitman gerði árið 1984, en hann spilar á
sömu grunnþætti hér; skemmtilegt gengi vitleysinga sem takast á við
yfirnáttúruleg fyrirbæri, óþolandi embættismenn, slímug óféti og tilkomumikinn
lokabardaga. Geimverurnar eru slímugar, viðbjóðslegar en lengst af of
bjánalegar til að vera eitthvað sérstaklega ógnvekjandi, enda skiptir það engu
máli þar sem hér er um létta gamanmynd að ræða. Þetta hefur auðvitað allt
verið gert þúsund sinnum áður en kæruleysislegur leikur, nóg af bröndurum og
látlaus fíflagangur í Jones og Scott gera "Evolution" að frábærri skemmtun.
Svona eiga sumarmyndir að vera.