»  kvikmyndir  »  Gæsapartý
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Gæsapartý
Sunnudagur, 29. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Flippgæsir í góðu stuði

Hún Freyja er að fara að giftast kærastanum sínum, sem er meðlimur í sértrúarsöfnuði. Vinkonur hennar eru hinar mestu stuðgæsir og slá upp meiriháttar gæsapartíi á Mótel Venusi, þar sem er drukkið, djammað, strippað og klámkjaftur rifinn af miklum móð. Bróðir brúðarinnar, er besti vinur gumans og jafn klikkaður í Jesúdellunni, reynir að hafa hemil á gleðskapnum en gerir auðvitað bara illt verra með heilagri vandlætingu og halelújakjaftæði.

Hugmyndin að baki "Gæsapartíi" en þrælsniðug enda fátt skemmtilegra en að fylgjast með íslenskum brussum drekka sig pöddufullar, stúdera brjóstin á sér og leika sér með gervilimi. Partíið verður svo enn skemmtilegra þar sem vitleysingar úr sértrúarsöfnuði blandast í málið, en sjálfsagt liggja engir minnihlutahópar betur við höggi þegar grín er annars vegar - ráðviltar hjarðir sem elta forystusauði sína í blindni. Þessi kokkteill er ansi bragðgóður framan af og maður kemst ekki hjá því að skemmta sér ágætlega með skessunum í partíinu og brölti guðsengla sem vilja reyna að stoppa ósómann.

Partíhlutinn gengur skemmtilega upp í vitleysunni en svo fjarar hratt undan myndinni þegar innri átök persóna eiga að fá meira vægi. Brotalamir í handritinu verða þá ansi áberandi enda er ekki hægt að segja að það séu nein raunveruleg innri átök í gangi og því verður afskaplega erfitt að átta sig á hvað persónunum gengur til og hvað ræður gerðum þeirra, annað en bara tómur fíflagangur, heimska eða sjálfselska. Dramatíkin í þessum graut ristir ekkert dýpra en á hefðbundnu sukkkvöldi og manni er orðið voða mikið sama um allt í lokin, enda ekkert í framvindunni sem kemur sérstaklega á óvart.

"Gæsapatí" er þrátt fyrir augljósa galla og þunnt handrit ágætis skemmtun og það má hafa helvíti gaman af henni framan af en þegar upp er staðið skilur hún því miður ekkert meira eftir sig en sólarhringsfyllirý.

Amen.

| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff