Miðvikudagur, 11. júlí 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Hasar í húsdýragarði
Það kemur svo sem ekkert á óvart í myndinni, enda skiptir það
bara alls engu
máli. Við erum komin til að sjá risaeðlur og hasar og það er
nóg
af því í "Jurassic Park III". Myndin er miklu betri og
skemmtilegri
en "The Lost World", enda erum við, líkt og í fyrstu myndinni,
aftur stödd á eyju með Sam Neil og risaeðlum. Eðlurnar
eru flottar og Neil er traustur að vanda, en hann endurtekur
hér
hlutverk sitt sem risaeðlussérfræðingurinn Dr. Alan
Grant.
Hann hefur að vísu engan áhuga á að endurnýja kynni sín af
klónuðum
risaeðlum en lætur til leiðast þegar hjónin Paul og
Amanda
Kirby bjóða honum fúlgur fjár fyrir að gerast
leiðsögumaður
þeirra í flugferð yfir eyju þar sem gerðar voru tilraunir með
einræktun risaeðla. Hjónin hafa hins vegar aðrar og hættulegri
áætlanir og eftir að vélinni hefur verið lent á eyjunni byrjar
hasarinn.
Myndin fer rólega af stað, en það kemur ekki að sök, þar sem eðalleikarar
skila einföldum persónum sínum auðveldlega og sjá til þess að manni leiðist
aldrei. William H. Macy er bráðskemmtilegur í hlutverki "auðkýfingsins"
Kirby og Téa Leoni, frú X-Files Duchovny, er bæði sæt og skemmtileg í
hlutverki eiginkonunnar. Laura Dern kemur einnig við sögu í mikið minna
hlutverki en í fyrstu myndinni, en gegnir engu að síður mikilvægu hlutverki
fyrir atburðarásina. Þá er einnig rétt að minnast sérstaka litla pervisna
nördin Michael Jeter í hlutverki e.k. málaliða sem veit ekkert í sinn
haus. Jeter er skemmtilegur lítill kall, sem sést alltof sjaldan og líklega
man fólk helst eftir honum úr "Evening Shade" þáttunum hans Burts
Reynolds.
Myndin er eins og fyrr segir ekkert sérstakleag frumleg en er miklu rökréttara
og skemmtilegra framhald af "Jurassic Park" heldur en "The Lost World" sem
tapaði sér í einhverju undarlegu Godzillabulli og varð hreint út sagt
hallærisleg undir lokin. Tölvuteiknaðar eðlurnar voru auðvitað stórfrétt árið
1993 þegar fyrsta myndin kom í bíó en þykja auðvitað ekki merkilegar í dag.
Þær eru engu að síður frábærlega vel gerðar og svo það sé ekki hægt að saka
"JP3" um að vera hreina endurtekningu á fyrstu myndinni fáum við nýjar eðlur
(kóngurinn sjálfur T-Rex er bara skrifaður út starx í byrjun). Nýju eðlurnar
eru miklu gáfaðari en þær gömlu, auk þess sem sumar þeirra geta líka flogið.
Þá má einnig segja það þessari mynd til hróss að hún er aðeins grófari en
fyrri myndirnar, þannig að myndavélin lítur ekki alveg strax undan þegar
eðlurnar læsa tönnunum í aukaleikarana. Það er gaman.
"Jurassic Park III" er því prýðileg sumarskemmtun, spennandi, vel gerð í alla
staði og síðast en ekki síst vel leikin. Það ætti enginn að vera svikinn af
heimsókn í þennan magnaða húsdýragarð og um leið og risaeðlufóðrið lendir
flugvélinni sinni á eyjunni byrjar spennan sem er keyrð áfram með halarófu af
hasaratriðum, þannig að það er ekkert annað að gera en að halla sér aftur og
njóta vitleysunnar í ósviknum "þrjúbíófílíng".