Miðvikudagur, 25. júlí 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Máttugar meyjar og mannleysur
Skáldsagan "Mávahlátur"
eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur er bráđskemmtileg saga af máttugum
meyjum sem hrista upp í máttlausu karlaveldi eftirstríđsáranna. Sagan tók sig
sérstaklega vel út á fjölum Borgarleikhússins, fyrir nokkrum árum, og kemur
einnig afar vel út á hvíta tjaldinu. Einhvern veginn finnst mér ţó ađ
leikgerđin hafi fangađ anda sögunnar betur en bíómyndin gerir en ađ öllum
samanburđi skáldsögu og kvikmyndar slepptum stendur kvikmyndin fyllilega fyrir
sínu. Myndin er léttleikandi og á köflum bráđskemmtileg og ţó frásögnin sé í
grunninn raunsć er ţjóđsagnaminnum, sem voru áberandi í sögunni, fléttađ
smekklega inn í atburđarásina sem öđlast dularfulla vídd fyrir tilstilli
töfraraunsćis og tengsla viđ hulduheima.
Myndin hefst á ţví ađ glćsikvendiđ Freyja kemur í bćinn, nýbökuđ ekkja
frá Ameríku. Hún sest ađ á mannmörgu heimili uppeldissystur móđur sinnar og
hristir heldur betur upp í kvennaveldinu ţar, sem og bćjarlífinu öllu.
Sögumađur skáldsögunnar, stúlkukindin hún Agga, keyrir kvikmyndina
einnig áfram og varpar ljósi á ađrar persónur međ gagnrýnu auga ákveđinnar
stelpu, sem er enn ómenguđ af gelgjunni.
Persónur Freyju og Öggu eru ţungamiđja sögunnar og túlkun ţeirra Margrétar
Vilhjálmsdóttur (Freyju) og Uglu Egilsdóttur (Öggu) á ţeim er svo
mögnuđ ađ unun er á ađ horfa. Margrét nćr fantagóđum tökum á hinni dularfullu
Freyju og er jafnvíg í túlkun á styrkleikum og veikleikum persónunnar. Freyja
er náskyld Hallgerđi langbrók og tálkvenndum film noir myndanna
og banvćnn kynţokki hennar er bćđi ögrandi og ógnvekjandi međförum Margrétar.
Frammsitađa Uglu er svo ekkert síđri og hún gerir skondinni persónu Öggu
frábćr skil. Ađrir leikarar komast vel frá sínu og Hilmir Snćr Guđnason
nýtur sín t.d. afskaplega vel í mikilvćgu aukahlutverki Magnúsar löggu,
en Magnús og ađrir karlmenn í verkinu eru óttalega uppburđarlitlir og standa
komplexađir, drykkfelldir og ómerkilegir í skugga hinna sterku kvenna sem
drottna yfir sögusviđinu.
Ágúst Guđmundsson er klár leikstjóri og bćtir međ "Mávahlátri" enn
einni rós í hnappagat sitt og kemur ólíkum blćbrigđum sögunnar og samspili
raunsćis og töfraraunsćis hulduheimanna vel til skila. Ţá kann Ágúst vel ađ
fara međ húmor og kómískur undirtónn frásagnarinnar verđur aldrei
yfirţyrmandi, ýktur eđa bjánalegur og "Mávahlátur" verđur fyrir vikiđ
afskaplega skemmtileg og fagmannleg mynd sem klikkar ekki í neinum
meginatriđum. Ágúst nýtur ţess auđvitađ ađ hafa góđan efniviđ úr ađ mođa, en
skáldsagan er myndrćn og auđug af lifandi perónum, og traustur leikhópurinn,
međ ţćr Margréti og Uglu í fararbroddi, fer létt međ ađ blása lífi í
skrautlegar persónurnar og gera "Mávahlátur" ađ eftiminnilegri mynd sem
áhugafólk um íslenskan skáldskap og kvikmyndagerđ ćttu ekki ađ láta fram hjá
sér fara.