»  kvikmyndir  »  Rugrats in Paris
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Rugrats in Paris
Mánudagur, 16. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Þreytandi kvikindi

Glöggur kvikmyndarýnir benti einu sinni á það hérna á síðunni að hlutfallslega væru teiknimyndir betri en leiknar myndir. Ég er þessu alveg sammála og oftast nær eru þær teiknimyndir sem rata í kvikmyndahús á Íslandi hin frambærilegasta skemmtun bæði fyrir börn og fullorðna. Disney kann auðvitað fagið upp á sína tíu fingur og DreamWorks hafa verið að koma sterkt inn með gullmolum eins og "Shrek". Af og til koma hingað svo afdankaðar teiknimyndir sem eiga miklu frekar heima í barnatímum sjónvarpsstöðvanna fyrir hádegi um helgar. Þetta er svona dót sem tekst að halda athygli krakkanna en gerir nákvæmlega ekkert fyrir okkur hin, þannig að það er miklu mannúðlegra að maður geti dregið sængina yfir haus á meðan ósköpin dynja yfir. "Skriðdýrin í París" er af þessu tagi og ég held m.a.s. að mér sé óhætt að fullyrða að ég hafi skemmt mér betur á síðustu Pókemonmynd, en Skriðdýramyndinni

Rauðhærða skriðdýrið á enga mömmu og hann og pabbi hans eru einmana, en þegar öll skriðdýrahersingin fer til Parísar kynnist pabbi rauðhærða skriðdýrsins tveimur konum önnur er voða góð en hin er voða vond. Vonda kerlingin þarf nauðsynlega að eignast fjölskyldu hið snarasta (starfsins vegna) og hún leggur snörur fyrir einfaldan ekkjumanninn. Skriðdýrin sjá hins vegar í gegnum ófétið, sem er óttalega þreyttur skúrkur og kemst ekki með tærnar þar sem slöppustu Disney skúrkarnir eru með hælana. Krakkarnir verða því að redda málunum og getiði bara hvernig það fer. Myndin er ótrúlega fyrirsjáanleg í alla staði og nánast ekkert lagt í söguna, þannig að hún verður aldrei spennandi en tekst örsjaldan, í einangruðum atriðum, að vera fyndin en heildin er skelfilega veik. Flestir krakkar sem eru eldri en sex ára sjá strax í gegnum plottið en það kemur ekki að sök. Þeim leiðist ekkert enda bara spennandi að horfa á teiknimynd í fullkomnu öryggi um framvindu mála. Þeir fullorðnu eiga hins vegar ekki sjö dagana sæla að sitja undir þessu öllu saman, sérstaklega þar sem það er engin spurning að allir sæmilega dannaðir foreldrar verða að fara með börnin á þessa mynd, einfaldlega vegna þess að það hefur verið skammarlega lítið við að vera fyrir krakka í bíó í sumar. Fyrst "Shrek", svo "Cats&Dogs" og nú Skriðdýrin, þegar endurnýjunin er svona dræm þiggjum við eiginlega allt með þökkum.
| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff