»  kvikmyndir  »  Rush Hour 2
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Rush Hour 2
Fimmtudagur, 12. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Tommi og Jenni snúa aftur

Jackie Chan og Chris Tucker endurtaka leikinn og fíflaganginn úr "Rush Hour" og skemmta sér greinilega konunglega og ţađ er bara ekki hćgt annađ en ađ skemmta sér međ ţeim, ţó handritiđ sé ţreyttur grautur sem hefur ţann tilgang einan ađ tengja saman skemmtileg slagsmálaatriđi. Tucker er ágćtis vélbyssukjaftur (ţó hann standist ekki t.d. Eddie Murphy snúning ţegar hann var upp á sitt besta). Tucker fer létt međ ađ halda gríninu gangandi og Chan gefur honum lítiđ eftir, ţó hann sé ţarna auđvitađ fyrst og fremst til ađ sjá um frumlegar og léttvćgar barsmíđarnar. Chan er nefnilega bráđskondinn naggur og greinilega afskaplega međvitađur um hversu hallćrislegt fyrirbćri hann er, en kemst upp međ ţetta ţar sem hann er svo dásamlega međvitađur um ţađ ađ hann er skrípókall.

Myndin hefst á ţví ađ Tucker er kominn til Hong Kong ađ heimsćkja vin sinn og félaga Jackie Chan. Chan er hins vegar vođa upptekinn í vinnunni og er ađ eltast viđ vondan smyglara sem kálađi pabba hans fyrir fimm árum. Ţetta fer í taugarnar á Tucker sem var bara kominn til ađ skemmta sér og reynir eftir fremsta megni ađ gera ţađ í öllum látunum. Allt er ţetta svo léttvćgt og barnalegt ađ andi Tomma og Jenna svífur yfir vötnum og myndin virđist ađallega stíluđ inn á 10-12 ára stráka sem fá fullt af skemmtilegum slagsmálum, "one linerum" og rosaflottri bombu í undirfötum frá Victorias Secret. Gaman, gaman.

"Rush Hour 2" er engu ađ síđur prýđileg sumarskemmtun sem flestir ćttu ađ geta haft gaman af. Slagsmálahundar fá sinn skammt frá sínum manni Chan og Tucker kitlar hláturtaugarnar međ karókísöng og bjánastćlum. Myndin er vel unnin ţó ţetta sé auđvitađ hrađsođinn afţreyingargrautur. Frábćrir kínverskir leikarar koma svo viđ sögu sem skúrkar og lyfta ţessu svo öllu saman á hćrra plan. John Lone ("The Last Emperor", "The Lover", "Year of the Dragon") er alltaf traustur, alveg eitursvalur töffari og hin gullfallega Ziyi Zhang, sem stal "Crouching Tiger, Hidden Dragon" frá Chow Yun- Fat og Michelle Yeoh er rosalega flott. Mega kúng-fú beib og flott stelpa sem gaman er ađ horfa á og skemmtilegt ađ fylgjast međ svona yfirleitt. Ţá á Don Chedale skemmtilega innkomu í aukahlutverki og á sinn ţátt, ásamt fyrrnefnum kínverjum, í ađ myndin stendur ekki einungis uppi í minningunni sem dćmigerđ "buddy mynd" í teiknimyndastíl.


| 21:56 |

Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff