»  kvikmyndir  »  Scary Movie 2
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Scary Movie 2
Þriðjudagur, 10. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Ótrúlegt drasl

Ég átti nú svo sem ekki von á miklu, en það kom mér samt á óvart hversu ótrúlega illa gerð, ófyndin og leiðinleg "Scary Movie 2" er í raun og veru. Fyrri myndin tók nokkra ágætis spretti og var alllt í lagi en hér ríkir fullkomin upplausn og myndin er samhengislaus runa af misgömlum og lélegum klósettbröndurum. Stjarnan hálfa er fyrir James Woods og svolítið skondið "Exorcist" grín. Á afganginn er ekki orðum eyðandi, en reynum samt.

Það er auðvitað ekki heiglum hent að gera grín að unglingahryllingsmyndum, eftir að þær urðu svo póstmódernískt meðvitaðar um hvað þær eru hallærislegar og fyrirsjáanlegar í kjölfar hinnar prýðilegu "Scream". Þessum glötuðu Wayans bræðrum tókst þó að raða saman nokkrum spaugilegum atriðum í "Scary Movie" og allt rúllaði þetta áfram eftir einhverju sem gæti kallast söguþráður. Þá voru einhverjar persónur ágætar, morðinginn skemmtilegur fáviti og Carmen Electra þurfti ekkert að leika til að vera brjóstastóra bimbóið sem deyr. Myndin sló óvænt (því miður ef horft er á framhaldið) í gegn og því fylgdi "Scary Movie 2" í kjölfarið. Það sem bjargaði kannski fyrri myndinni var að hún gerði markvisst grín að "slasherum", en hér á þungamiðjan hins vegar að vera minnið um "the haunted house", ásamt andsetningum og draugagangi.

Draugahúsamyndir síðustu ára hafa bara, því miður, verið svo ömurlegar og misheppnaðar að það eitt að þær hafi yfirleitt verið gerðar er brandari og það er vont að gera sómasamlegt grín að því sem er svo misheppnað að það verður óvart fyndið. "Scary Movie 2" tekst ekki einu sinni að vera sniðug þegar hún endurskapar kunnugleg atriði úr eldri myndum, en það er einna helst í þeim tilfellum sem hægt er að brosa að svona "spoof" myndum. Myndin fer þó ágætlega af stað í grótesku "Exorcist" gríni, en verður ekki við bjargað eftir að snillingurinn James Woods skýtur andsetnu stelpuna í hausinn.

Þessi skortur á draugahúsamyndum gerir það af verkum að Wayansbjánarnir teygja sig ansi langt aftur í tímann þegar þeir leita að myndum til að skrumskæla, þannig er t.d. skopast með "The Amityville Horror", sem hét "Huset som Gud glemmte" úti á videoleigu þegar BETA tæki voru enn við lýði. Líkurnar á að gelgjumarkhópur myndarinnar kveiki á vísunum af þessu tagi eru auðvitað hverfandi (skiptir auðvitað engu máli þar sem þetta er jafn ófyndið hvort sem menn kveikja eða ekki), en það hlýtur að teljast til tíðinda að Wayansbræður þekki til mynda frá 1973-80. Þeir virðast hafa talið það formsatriði að gera þessa mynd. Þeir hafa mætt með óljósar hugmyndir í kollinum og raðað hroðalegum leikurunum fyrir framan tökuvélarnar og látið vaða og miðað við útkomuna mætti halda að þeir hafi aldrei séð bíómynd, horft á bíómynd eða yfirleitt klárað hálfa hugsun.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff