»  kvikmyndir  »  Shrek
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Shrek
Laugardagur, 07. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Langbesta mynd sumarsins

"Shrek" kemur úr smiðju DreamWorks og slær "Toy Story" myndirnar, frá Disney og Pixar, algerlega út hvað raunveruleika tölvuteikninganna varðar (og þá er mikið sagt). Persónurnar og allt umhverfi þeirra er svo lifandi að maður hreinlega gleymir því á köflum að um teiknimynd er að ræða. Þá er handrit myndarinnar óvenju vandað, vitrænt og vel skrifað og höfðar að því leyti jafnvel betur til fullorðinna en barna. Galsinn og fíflagangurinn vegur svo upp á móti, þannig að myndin verður frábær skemmtun bæði fyrir börn, gamalmenni og alla þar á milli.

"Shrek" er ekta gamaldags ævintýri og hefði þess vegna getað átt heima í safni þeirra Grims bræðra, fyrir utan þá staðreynd að Shrek gefur skít í gömlu ævintýrin (í bókstaflegri merkingu) og skeinir sér með síðustu blaðsíðunni í Þyrnirós. Og það er einmitt í þessu sem snilldin og galdur "Shrek" liggur. Hún vísar endalaust í gömlu ævintýrin, sem kynslóðirnar hafa alist upp með, og gerir um leið góðlátlegt grín að öllu saman og kallar fram hlátur hjá ungum sem öldnum. Þá hefur myndin að sjálfsögðu boðskap, eins og öll alvöru ævintýri, og laumar því skemmtilega að krökkunum að það eigi ekki að dæma fólk eftir útlitinu heldur innri manni.

Shrek er geðstirt, grænt tröll sem vill bara fá að njóta lífsins og vera í friði í mýrinni sinni. Þetta breytist allt þegar hann kynnist málglöðum Asna og mýrin fyllist af ævintýrapersónum sem Farquaad greifi hefur hrakið í útlegð. Shrek unir þessu illa og heimtar mýrina sína aftur af greifanum og það verður að samkomulagi þeirra á milli að Shrek bjargi Fionu prinsessu frá dreka nokkrum, áður en mýrin verður rýmd. Asninn og Shrek leggja af stað í björgunarleiðangurinn og þá fer ævintýrið fyrst af stað.

Talsetning myndarinnar, er eins og fyrr segir ,alveg frábær og leikararnir sem ljá persónunum raddir sínar fylla þær af lífi. Mike Myers er stórfínn sem Shrek, Cameron Diaz fer létt með Fionu, John Lithgow er dásamlegur í hlutverki Farquaads og Eddie Murphy er algjörlega stórkostlegur í hlutverki Asnans. Leikararnir njóta þess auðvitað að samtöl myndarinnar eru sérstaklega vel skrifuð og eru drepfyndin, það er varla sög setning án þess að í henni leynist a.m.k. einn góður brandari. Orðaleikirnir eru margir og góðir og ég mæli eindregið með því að fólk skelli sér fyrst á ensku útgáfuna og skreppi svo aftur með krakkana á íslensku talsetninguna, þannig fá allir hámarksskemtun út úr myndinni og það drepur engann að sjá "Shrek" nokkrum sinnum í röð.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff