»  kvikmyndir  »  Small Time Crooks
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Small Time Crooks
Laugardagur, 21. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Alltaf er nú hann Woody góður

Það telst alltaf til tíðinda þegar ný mynd frá Woody Allen kemur í bíó og það er nánast stórfrétt að "Small Time Crooks" sé LOKSINS komin, þar sem harðir Allen aðdáendur eru þegar farnir að bíða eftir nýjustu mynd kappans "The Curse of the Jade Scorpion". Mér skilst að vísu að það sé búið að festa kaup á þeirri mynd, þannig að það má gera sér vonir um að hún komi fyrir sjónir almennings fyrr en síðar. Nema hún verði látin safna ryki í einhverja mánuði af því að þessir 3000 áskrifendur að Woody Allen myndum hafa sýnt svo mikla biðlund hingað til.

Nóg um það. "Small Time Crooks" er stórskemmtileg mynd. Allen sjálfur fer á kostum í hlutverki heimsks hvítaruslskrimma sem verður fyrri því óláni að verða moldríkur, með löglegum hætti, og tilvera hans hrynur í kjölfarið. Persónan er, eins og alltaf, sniðin að persónu leikarans, sem segist bara getað túlkað taugaveiklaða gáfumenn og s.k. "white trash". Söngkonan Tracy Ullman leikur eiginkonu Allens, en myndin gengur að miklu leyti út á drauma hennar um að hasla sér völl í samkvæmislífi ríka og fræga fólksins, sem gónir á myndlist og hlustar í andakt á sinfóníur, á meðan Allen vill bara lepja bjór og horfa á box í hvítum hlírabol.

Allen og Ullman njóta svo stuðnings fjölda snilldarleikara sem gera sér góðan mat úr safaríkum samtölum meistarans, þannig að maður er meira og minna flissandi eða hlæjandi út alla myndina. Hinn kostulega subbulegi Jon Lovitz er merkilega eðlilegur og sýnir yfirvegaðan og bráðskemmtilegan leik. Snillingurinn Michael Rappaport, sem sérhæfir sig í vitgrönnum góðmennum, fer á kostum og sýnir að það er engin tilviljun að hann sé að leika fyrir Allen í annað sinn, en hann sýndi einnig snilldartakta í "Mighty Afrodite". Hugh Grant heldur svo áfram að þróa fágaða flagararulluna sem hann byrjaði með í "Bridget Jones" og tekst bara vel upp.

"Small Time Crooks" er feykilega vel skrifuð hjá Allen og samtölin eru hreint út sagt dásamleg á köflum og leikararnir eru hver öðrum betri. Það er varla hægt að fara fram á mikið meira á þessum síðustu og verstu tímum. Það má vissulega finna að því að Allen hafi nú oft verið dýpri og beittari en það skiptir bara engu andskotans máli hér. "Small Time Crooks" bara lítil, sæt og skemmtileg mynd, sem ætti að geta komið öllum í gott skap. Eiginlega er það eitt að fá hana loksins í bíó næg ástæða til að maður brosi allan hringinn í a.m.k. viku.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff