Laugardagur, 14. júlí 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Diesel á 300 km hraða
Handritið að "Fast and the
Furious" er ekki upp á marga fiska og sagan er gömul tugga sem við höfum m.a.
séð í myndunum "Point Break", með Keanu Reeves og Patrick Swayze
og "No Man´s Land" með Charlie Sheen. Eini munurinn á "Fast and the
Furious" og "Point Break" er eiginlega sá að nú erum við með bílaklíku í
staðinn fyrir brimbrettagengi og persóna Vins Diesel er ekki
búddaspekingur eins og Swayze í eldri myndinni. Nú skiptir sagan auðvitað ekki
höfuðmáli í myndum af þessu tagi, enda er hraði og bílar aðal málið hér, rétt
eins og nafnið gefur svo greinilega til kynna.
Paul Walker er ömurlegur í hlutverki löggu sem kemst inn í innsta hring
götugengis sem stundar brjálaða kappakstra á götum Los Angeles á næturnar.
Diesel leikur klíkuforingjann Dom Toretto með miklum stæl og
töffaraskap og það er trúlega engin spurning að Diesel verður næsta "action"
stjarnan í Hollywood. Hann er alveg með kúlið á hreinu hér en nær þó ekki að
toppa frammistöðu sína í "Pitch Black" og gerir það sennilega seint.
Löggan verður skotin í systur Doms og þeir verða hinir mestu mátar, þannig að
það kemur til með að reynast löggugreyinu erfitt að stinga Dom í steininn
þegar þar að kemur. Svona er söguþráðurinn og það er svo sem allt í lagi en
það hefði bara þurft aðeins meiri hasar og fleiri bílaeltingaleiki til að
draga athygli áhorfenda frá því hversu þunnt þetta er. Auk þess sem kjánaleg
samtöl persónanna verða á köflum frekar hallærisleg og sumt af því sem
aumingja Diesel þarf að láta út úr sér gerir hann eiginlega glataðan í stöku
atriðum.
En nóg um það. Myndin er ágætis skemmtun þrátt fyrir augljósa galla.
Akstursatriðin eru hröð og skemmtilega útfærð, þannig að hasarhausar og
bíldellulið fær sinn skammt. Diesel er þrælkúl og heldur myndini saman þó
Girlfightgellan Michelle Rodriguez skyggi á hann og sé eiginlega meiri
töffari. Hún er súperkúl og það verður gaman að sjá hana í hlutverki
uppvaknings í "Resident Evil", enda efnileg leikkona á ferðinni sem mun, líkt
og Diesel, láta til sín taka í framtíðinni. Ted Levine ("The Silence of
the Lambs") er alltaf góður og er mjög skemmtilegur í hlutverki yfirmanns
löggunördsins.
"The Fast and the Furious" er heit, sveitt og hröð mynd með miklum
töffaraskap, stæltum strákum, flottum stelpum, kraftmiklum bílum, reykspóli,
slagsmálum og bremsuhljóðum. Eitthvað fyrir næstum alla í sumarlok og með
örlítið meiri hraða og krafti hefði tekist að láta okkur gleyma þunnu plotti
og innihaldslausum samtölum.