»  kvikmyndir  »  The In Crowd
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
The In Crowd
Fimmtudagur, 19. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Gellan sem flaug yfir Gaukshreiðrið

"The In Crowd" segir frá henni Adrien sem dvelur á hæli, enda svoldið tæp á geðsmunum. Lækirinn hennar hefur tröllatrú á að hún geti fótað sig úti í lífinu og fær hana lausa með ákveðnum skilyrðum. Hann reddar henni svo vinnu í einhverjum millagolfklúbbi þar sem unga, fallega, ríka fólkið spókar sig sólbrúnt með þvottabretti og þrýstna barma. Aðalgellan heitir Brittany. Hún er ríkust, sætust og með stærstu brjóstin. Hún opnar Adrien aðgang að heimi hinna rotnu og ríku og Adrien er bara hæstánægð með það, svona framan af. Það kemur svo hins vegar á daginn að Brittany er snælduklikkuð og alls ekki öll þar sem hún er séð. Hún er hroðalegt flagð undir skelfing fögru skinni. Þegar Adrien fer að gruna Brittany um morð og annan ósóma útskúfar Brittany henni og reynir að koma henni aftur á Klepp.

Allt gerist þetta hægt og leiðinlega og eftir fyrsta hálftímann er maður meira að segja orðinn leiður á kroppasýningunni sem er öll í anda "Baywatch" þáttanna sálugu. Maður er alltaf hálfpartinn að vona að Brittany geri Adrien endanlega geðbilaða, þannig að úr verði a.m.k. þolanlegur táninga "slasher" þegar Adrien byrjar að slátra öllum vondu, fallegu, ríku krökkunum. Því miður er ekkert svoleiðis fjör á ferðum. Adrien er ekkert brjálaðari en t.d. Jack Nicholson í "Gaukshreiðrinu", heldur bara voða úrræðagóð og klár stelpa sem hefur greinilega náð býsna góðum tökum á geðheilsu sinni. Þannig að myndin er laus við öll innri átök, alla spennu og vekur ekki minsta hroll. Þannig að um leið og maður fær nóg af því að glápa á stælta stráka og sætar stelpur er ekkert eftir nema þreytandi Keflavíkurganga að endalokunum óumflýjanlegu sem eru að þessu sinni átakanlega hallærisleg og útjöskuð.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff