»  kvikmyndir  »  Tomb Raider
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Tomb Raider
Sunnudagur, 01. júlí 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Angelina er æði!!

Því miður hefur ekki verið sett mikið púður í handrit myndarinnar og sagan er frekar asnaleg, jafnvel fyrir mynd af þessu tagi. Hún verður því á köflum þreytandi, en sagan er sem betur fer ekkert annað en afsökun til að leyfa Angelinu Jolie að spóka sig í þröngum bolum, spóla á mótorhjóli og meðhöndla byssur eins og hún hafi verið í læri hjá Chow-Yun Fat. Hún er æði og gerir það af verkum að mann langar að sjá myndina aftur og aftur... og aftur, ef maður er nörd.

Lara Croft er hefðardama sem hefur þó aldrei getað tamið sér siði fína fólksins og hefur miklu meira gaman af því að þvælast heimshorna á milli og leita uppi fornleifar, ekki ósvipað og hann Indiana Jones og þau eiga margt sameiginlegt. Það að sem skilur helst á milli er brjóstmálið og Indiana Jones myndirnar eru mikið metnaðarfyllri framleiðsla. Myndin er þó alveg prýðileg skemmtun framan af og það er auðvitað ofsa gaman að horfa á Jolie í teygjustökki í náttfötunum, leðraða frá toppi til táar á mótorhjóli o.s.frv., en þegar líður á myndina fara brotalamirnar í handritinu að gera vart við sig og þegar Lara mætir loks til Íslands er þetta nú orðið frekar þreytt allt saman.

Lara leitar hér að eldgömlum grip sem er í tveimur hlutum, en ef hlutarnir eru sameinaðir geta þeir gert það af verkum, á 5000 ára fresti að vísu, að handhafi þeirra getur stjórnað tímanum. Faðir Löru Lord Croft sem hvarf fyrir löngu síðan og hefur verið talinn af um árabil hafði komist á snoðir um að hópur manna ætlaði sameina brotin, með illt eitt í hyggju. Croft skildi eftir vísbendingar fyrir Löru dóttur sína og ætlar henni að koma í veg fyrir áætlun vondu kallanna. Enda vissi hann það manna best að Lara gefst aldrei upp.

Það eru Lara Croft og Angelina Jolie sem gera myndina að því sem hún er. Angelina er æðisleg í hlutverki Löru. Nánast bara geðveik. Einhver rætinn erlendur gagnrýanndi hefur sagt að það séu tvær stjörnur í myndinni, nefnilega brjóstin á Jolie. Þau eru vissulega til staðar og í forgrunni nánast allan tímann en það breytir því þó ekki að það er Jolie sjálf sem er stjarnan, að brjóstunum ólöstuðum. Hún lifir sig algerlega inn í hlutverkið og skilar flatri og einfaldri persónu Löru betur en nokkur önnur leikkona gæti mögulega gert. Angelina er kvenntortímandinn sem leysir þær Lindu Hamilton og Sigourney Weaver af hólmi. Aðra leikara tekur því vart að minnast á, nema auðvitað að það er voða sætt að sjá Jon Voigt (alvöru pabba Angelinu) leika Lord Croft.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff