Laugardagur, 28. júlí 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Denzel Washington rústar Ethan Hawke
Antoine
Fuqua hefur bara þroskast heilmikið, sem leikstjóri, síðan í "The
Replacements Killers" og myndin er hið frambærilegasta löggudrama. Hún er rétt
mátulega spennandi og dettur að vísu ofan í gamalt klisjuhjakk í restina, en
Denzel Washington heldur henni uppi, enda í banastuði sem vondi kallinn
og leikur aumingjann Ethan Hawke sundur og saman, en sá þrautleiðinlegi
leikari fær það vandasama verkefni að leika óreynda löggu sem gefst kostur á
að fá að vinna með flottasta löggutöffara borgarinnar, sem Denzel
Washington leikur með meiriháttar tilþrifum, þannig að getuleysi Hawkes,
sem leikara, verður sorglega áberandi í samanburðinum.
Washington er svo ekki allur þar sem hann er séður og er, þrátt fyrir að vera
súperlögga, vondi kallinn í myndinni, alveg gerspilltur og morkinn, þannig að
helst er hægt að finna persónunni hliðstæðu í túlkun Harvey Keitels í
"Bad Lieutenant". Það stormar af Washington í hlutverkinu og það fer honum
svakalega vel að vera skúrkur og hann bjargar myndini fyrir horn, þar sem það
fer verulega að halla undan fæti í lokin þegar frumleg og áhugaverð sagan
rennur út í hefðbundið uppgjör þess góða og vonda. Þessi endalausu slagsmál
eru nefnilega orðin alveg svakalega hallærisleg og þreytt.
Þá koma þriðja flokks leikarar á borð við Scott Glenn og Tom
Berenger ánægjulega á óvart og setja skemmtilegan svip á þessa ágætu
glæpamynd sem hefði orðið enn sterkari og eftirminnilegri ef menn hefðu lagt
sig aðeins fram við að klára dæmið öðruvísi en gert hefur verið í nánast öllum
hasarmyndum síðustu tuttugu ára. Þetta skiptir höfuðmáli hér, þar sem
"Training Day" byrjar ekki sem dæmigerð "hasarmynd" og hefði staðið stekari
eftir sem mannlegur harmleikur og dramatísk löggumynd ef hægt hefði verið að
sneyða hjá klisjupakkanum í lokin.