»  kvikmyndir  »  From Hell
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
From Hell
Sunnudagur, 05. ágúst 2001

:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::

Aufúsugestur úr Helvíti

Ráðgátan um Jack the Ripper hefur alltaf verið sérstaklega heillandi og hefur þar af leiðandi að sjálfsögðu verið marg kvikmynduð og hafa t.d. ekki minni menn en Sherlock Holmes ("Murder By Decree" 1979) reynt að hafa hendur í hári kauða sem sniglaðist um í þykkri Lundúnaþokunni og slátraði fimm hórum árið 1888. Myndirnar um Kobba hafa að sjálfsöðgu verið misjafnar að gæðum, en það er þó alltaf einhver sjarmi yfir karlhelvítinu og það er ekki hægt að segja annað en það sé ánægjulegt að þessi sjaldséði gestur hafi látið sjá sig í bíó eina ferðina enn, enda er "From Hell" eftir þá Hughes bræður afskaplega smart moðsuða upp úr sögunni um þennan fyrsta raðmorðingja sem náði e.k. poppstjörnustatus. Myndin er byggð á samnefndri teiknimyndasögu eftir Alan Moore sem myndasögusérfræðingar hafa tjáð mér að sé einn sá allra besti í þeim bransa.

Moore byggði sögu sína á bók um Kobba sem fór fremur frjálslega með sögulegar staðreyndir og myndin ber þess greinileg merki. Það skiptir þó í sjálfu sér ekki höfuðmáli, enda er krafa um sögulega nákvæmni hálfgert aukaatriði, og nánast fjarstæðukennd, þegar amerískar hryllingsspennumyndir eru annars vegar, en þeir sem þekkja ekki til Kobba (séu þeir einhverjir) ættu þó að hafa það hugfast að myndin tekur sig ekkert alltof bókstaflega sögulega. Við fáum að vísu nasaþefinn af öllum helstu kenningum sem til eru um þennan skurðglaða brjálæðing, þar sem læknar og frímúrarar liggja undir grun ásamt erfingja bresku krúnunnar, sem kallar á bein afskipti Viktoríu drottningar. Lýsingar á subbulegu umhverfinu í London fyrir aldamótin 1900 og ömurlegum kjörum hinna fátæku eru býsna góðar og sjálfsagt er hér um vönduðustu sviðsmynd sem sést hefur í Jack the Ripper mynd að ræða, þó fróðir menn hafi að vísu sett út á að fórnarlömb morðingjans séu gerð full hugguleg, en hórurnar sem Kobbi myrti voru víst meira og minna tannlausar og gráhærðar og myndu seint standast nútímakröfur og fá að þræða sig utan um súlur. "From Hell" er, í það heila, ágætis hraðspólun yfir mál Kobba, skemmtilega stílfærð, vel leikin og áhugaverð mynd sem líður þó óneitanlega svolítið fyrir lengdina enda verður það að segjast eins og er að það er svolítið hæpið að teygja morðsögu sem nánast öll heimsbyggðin kannast við upp í 121 mínútu án þess að keyrslan detti niður á köflum.

Góðir leikarar en of lítill viðbjóður

Leikararnir í myndinni standa sig nær undantekningalaust með prýði og þá ber auðvitað fyrstan að nefna fegurðargoðið og einn eftirlætisleikara undirritaðs Johnny Depp sem er traustur, flottur og skelfilega fallegur að vanda, í hlutverki Frederick Abberline sem hafði umsjón með rannsókninni á máli Kobba. Depp er að vísu eiginlega of myndarlegur og sjálfsagt býsna ólíkur hinum raunverulega Abberline. Þá er Abberline gerður að berdreymnum dópista í myndini og það passar ekki alveg og eiginlega kunni maður betur við hann sem mislukkaða fyllibyttu eins og hann var í meðförum Michaels Caine í sjónvarpsmyndini Jack The Ripper frá árinu 1988. En Depp er flottur og sjarmerandi, það verður ekki af honum tekið.

Heather Graham gerir síðasta fórnarlambi Kobba, Mary Kelly ágæt skil, er auðvitað allt of sæt, en heimildir herma að vísu að Kelly hafi borið af stöllum sínum í Whitechapel. Þannig að þetta er allt gott og blessað. Robbie Coltraine klikkar ekki frekar en venjulega en fær lítið svigrúm til að sýna tilþrif í stöðluðu hlutverki yfirmanns Abberline. Senuþjófur myndarinnar er svo tvímælalaust Ian Holm (Bilbo í "Lord of the Rings") sem fer á kostum í hlutverki Sir William Gull en mikilvægi þeirrar persónu hefur verið æði misjafnt í Kobbamyndum hingað til, en hér er Gull heldur betur í forgrunni.

Það má finna hitt og þetta smávægilegt að "From Hell" en hún er engu að síður geyslilega smart og sum skotin eru t.d. glettilega lík römmum í teiknimyndasögum. Þá er hún vel leikin og segir sígilda hryllingssögu sem maður þreytist aldrei á. Lengdin er þó, eins og fyrr segir, alveg á mörkunum og í ljósi þess hversu viðbjóðslegir glæpir Kobba voru hefði nú alveg mátt sulla aðeins meira blóði og sletta fleiri innyflum. Bara svona til að undirstrika viðbjóðin, en Hughes bræður kjósa hins vegar að fara pent í þetta og hlífa okkur við splatterum, þannig að við sitjum uppi með mátulega spennandi morðgátu sem engum ætti að vera vorkun að sitja undir.


| 21:56 |

Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff