Laugardagur, 04. ágúst 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Þrælfín bófamynd
David Mamet er býsna flinkur
handritshöfundur sem hafur farið létt með að skrifa þægilegar og skemmtilegar
glæpamyndir ( "The Postman Always Rings Twice", "The Untouchables", "Things
Change"). Hann er einnig frambærilegur leikstjóri og sýndi og sannaði í "State
and Main" að hann kann vel að fara með lúmskan og afslappaðan húmor. Þessir
þættir í fari Mamets koma skýrt fram í "Heist", sem hann bæði leikstýrir og
skrifar, og myndin er þrælfín skemmtun. Stórfínn leikarahópur og lipur
samtölin, sem eru hlaðin bráðskemmtilegum tilsvörum, vega þungt og lyfta
myndinni upp. "Heist" er svo sem ekkkert ýkja frumleg og er á kunnuglegum
slóðum "heistmyndanna", eins og nafnið bendir til, en Mamet nær engu að síður
upp góðum dampi og heldur athygli áhorfenda vel, enda er ekki allt sem sýnist
og engum er treystandi, enda erum við með flókið rán, litskrúðugan hóp
glæpamanna og svik á svik ofan, þannig að fléttan verður æ skemmtilegri eftir
því sem hlutirnir flækjast og Mamet afvegaleiðir persónurnar og áhorfendur
fram og til baka, þannig að maður getur ekki verið viss um neitt fyrr í
leikslok.
Gene Hackman er aðalgaurinn í myndinni, gamalreyndur ræningi sem ætlar
að setjast í helgan stein en hann þarf þó að fremja eitt stórrán í restina til
að geta haft það náðugt í ellinni. Hann stýrir þrælfínni bófaklíku sem tekur
þátt í ráninu með honum, en gengið skipa
Delroy Lindo og
Sam
Rockwell sem eru báðir alveg bráðskemmtilegir í hlutverkum sínum. Lindo er
töff og kúl að vanda og Rockwell er dásamlega hlýlegur auli sem ekki er hægt
annað en að falla fyrir. Þá er ung og sæt eiginkona Joes, sem
Rebecca
Pidgeon leikur með miklum sóma, einnig mikilvægur meðlimur í hópnum.
Ránið fremja þau í félagi við glæpaforingjann Danny DeVito, sem er ætíð
líklegur til að snuða þau þannig að Hackman þarf alltaf að vera nokkrum
leikjum á undan samstarfsaðilanum. Þetta verður svo auðvitað hin
skemmtilegasta svikamylla og manni leiðist aldrei yfir framvindunni sem rennur
afskaplega vel eftir hlykkjóttum farveginum sem Mamet veitir henni í. Persóna
Hackmans er alveg svakalega klár og virðist alltaf geta komið með krók á móti
bragði, ekki ósvipaður og George Clooney í "Ocean´s 11". Persóna
Hackmans, sem og aðrar persónur í "Heist", eru þó mikið vandaðari og
skemmtilegri en sæta gengið í "Ocean´s 11" og það er mikið auðveldara að sætta
sig við snilld Hackmans heldur en Clooneys. "Heist" er alveg þrælfín bófamynd,
skemmtilega skrifuð og afar vel leikinn og þrátt fyrir margþvældan og
klisjukenndan söguþráðinn þá er svo mikið af svikum og blekkingum á ferðinni
að maður getur aldrei verið viss um neitt, þó maður sé svo sem heldur ekkert
skjálfandi á sætisbrúninni af spenningi.
| 21:56 |