Fimmtudagur, 02. ágúst 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Clooney og Soderbergh í góðum gír
"Oceans 11" er
endurgerð á samnefndri mynd frá 1960 þar sem Frank Sinatra fór fyrir
félögum sínum, Sammy Davis Jr. og Dean Martin í þaulskipulögðu
ráni sem byggði á útpældu snilldarplani. Hér er það>, hins vegar, George
Clooney sem smalar saman 10 gaurum í þeim tilgangi að ræna hvelfingu sem
geymir peninga fyrir þrjú stór spilavíti í eigu Andys Garcia. Eins og í
öllum almennilegum "heist" myndum fer dágóður tími í að smala genginu saman og
leggja á ráðin. Þessi hluti á það til að verða þreytandi og leiðinlegur en hér
er þetta allt saman bráðskemmtilegt, enda góðir leikarar að fíla sig vel í
hlutverkum kynlegra kvista sem, þrátt fyrir það að vera allir meira og minna
stórundarlegir, hafa eitthvað til brunns að bera sem berir þá ómissandi í hinu
flókna ráni. Spennan magnast svo jafnt og þétt og Soderbergh fléttar
atburðarásina skemmtilega saman, líkt og í "The Limey" og "Out of Sight",
þannig að lygavefurinn sem krimmarnir spinna utan um Garcia fer að minna á
brellur þeirra Paul Newmans og Roberts Redford í "The Sting".
Þetta er sem sagt allt saman smart, flott og mátulega skemmtilegt, þannig að
eftir stendur prýðileg glæpamynd sem kemur ánægjulega á óvart.
Soderbergh er vitaskuld hörkuklár leikstjóri sem á afskaplega auðvelt með að
búa til afslappaðar glæpamyndir sem eru þrátt fyrir hæga atburðarásina
þrælspennandi og hin prýðilegasta skemmtun. "The Limey" er gott dæmi um þetta
og "Out of Sight" auðvitað ennþá betra, en í þeirri mynd fór Clooney á kostum,
alveg eitursvalur að vanda, og svo skemmtilega vill til að hann stekkur nánast
óbreyttur og úberkúl beint yfir í "Ocean´s 11". Soderbergh kann svo sannarlega
að velja leikara og hér er, nánast, valinn maður í hverju rúmi; gamla kempan
Elliott Gould kemur sterkur inn og sama er að segja um hinn
stórskemmtilega leikstjóra
Carl Reiner sem blómstrar í hlutverki gamals
glæpamanns með magasár. Hrein snilld.
Þá er Don Chedale, sem Soderbergh notaði síðast í "Traffic", traustur
að vanda sem skemmtilega fríkaður sprengjusérfræðingur og Andy Garcia
er kaldur sem vondi kallinn. Þeir Clooney kunna töffið algerlega utanbókar og
því verður frekar lítið úr unglingunum Matt Damon og Brad Pitt,
sem sleppa þó skammlaust frá sínu. Julia Roberts er svo þreytandi að
vanda, en Soderbergh virðist, einhverra hluta vegna, helst ekki vilja sleppa
henni eftir að þau unnu saman að "Erin Brockovich". Það er auðvitað hans mál
og breytir svo sem engu til eða frá hér, enda þarf miklu meira en Juliu
Roberts til að skemma afslappaða og skemmtilega stemninguna í þessari
prýðilegu glæpamynd.
| 21:56 |