Föstudagur, 03. ágúst 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Litríkur sólargeisli í skammdeginu
"Regína" er hressileg
íslensk dans- og söngvamynd sem höfðar til allrar fjölskyldunnar. Sagan er
ekkert ýkja frumleg og er n.k. hrærigrautur stefja og persóna úr barnabókum og
Disneymyndum síðustu áratuga. Það er svo sem ekkert við það að athuga enda er
léttleikinn allsráðandi í "Regínu" og ýktar persónurnar og mátulegur ofleikur,
ásamt líflegum og litríkum söngatriðum, fylla myndina af glaðlegum
teiknimyndafíllíng sem smitar út frá sér og heldur krökkunum hugföngnum framan
af. Þegar lopinn er svo fullteygður og maður fer að óttast að þetta sé allt að
renna út í sandinn, tekur sagan góðan fjörkipp, glæpahyskið fer að láta til
sín taka fyrir alvöru og allt endar þetta í dæmigerðu, en skondnu uppgjöri,
þar sem ringluðum foreldrum, heimskum löggum, sjálfumglöðum glæponum og
ráðagóðum krökkum, lýstur saman á hafnarbakkanum. Þeir sem eiga það skilið
hljóta auðvitað makleg málagjöld og allir eru voða glaðir á kátir. Þetta er
sem sagt ekta "fílgúdd mynd", sem heldur börnunum við efnið og tekst á köflum
að heilla bæði unga sem aldna.
Regína er tíu ára stelpa sem býr ein með mömmu sinni í Reykjavík.
Sumarið virðist ætla að verða hundleiðinlegt hjá henni, þar sem allir
krakkarnir í hverfinu eru að fara í sumarbúðir. Regína fær þó ekki mikinn tíma
til að barma sér enda eru ævintýrin handan við hornið og fyrr en varir hafa
hún og
Pétur, sem er sonur einstæða kaupmannsins á horninu, komist að
því að þau geta haft áhrif á gerðir fólks með því að syngja rímaða texta.
Þetta hefur auðvitað margt skemmtilegt í för með sér og þau ákveða að nota
þennan hæfileika m.a. til að koma foreldrum sínum saman, enda sárvantar Regínu
pabba og bæði vilja þau eignast systkyni.
Þá skýtur sjarmörinn Baltasar Kormákur, illu heilli, upp kollinum,
heillar mömmuna og setur ráðagerð krakkanna úr skorðum. Það kemur svo á daginn
að hann er varasamur glæpamaður, sem hefði meira að segja getað reynst
krakkaspæjaranum Karli Blómkvist skeinuhættur og krakkarnir mega því
heldur betur taka á honum stóra sínum til að bjarga dýrmætu hálsmeni úr klóm
kauða og auðvitað frelsa mömmuna frá illu í leiðinni. Eins og vera ber í svona
sögum er lögreglan grútmáttlaus og forledrarnir heldur ekki til stórræðanna
líklegir, þannig að krakkarnir verða að bjarga málunum á eigin spýtur.
Sigurbjörg Alma Ingólfsdóttir og Benedikt Clausen leika krakkana
sómasamlega, komast bærilega frá söngatriðunum og eru afskaplega lífleg og
skemmtileg. Fullorðnu leikararnir skila sínu þokkalega og það hjálpar þeim
heilmikið að allt yfirbragð frásagnarinnar er kæruleysilsegt og ýkt, þannig að
svigrúmið fyrir fíflagang er töluvert. Baltasar er t.d. vægast sagt ýktur, en
þar sem það er fullkomlega viðeigandi kemst hann upp með að stela slatta af
senum. Sólveig Arnarsdóttir er kúl sem brussulegt klæpakvendi og
Stefán Karl Stefánsson og Magnús Ólafsson gera vitgrönnum
löggunum góð skil. Halldóra Geirharðsdóttir og Björn Ingi
Hilmarsson leika foreldrana og þeim er nokkur vorkun þar sem persónur
þeirra eru áberandi leiðinlegastar og bjóða ekki upp á jafn mikinn fíflagang
hinir leikararnir komast upp með. Rúrik Haraldsson er svo seigur í
mikilvægu hlutverki gamals vinar Regínu. Hann er flottur og yfirvegaður og
kemur með smá alvöru og tragedíu jafnvægi í þessa litglöðu og líflegu
sumarmynd sem á fullt erindi við skammdegisþjakaða bíógesti.
| 21:56 |